Evrópuþingið samþykkti nýverið samhljóða ályktun þar sem kallað er eftir aðgerðum til þess að berjast gegn sífellt vaxandi verslun með fölsuð og ólögleg lyf. Meginábyrgðin í baráttunni gegn fölsuðum lyfjum liggur hjá yfirvöldum, en alþjóðleg samtök og lyfjaiðnaðurinn í heild sinni bera einnig miklar skyldur gagnvart því að tryggja neytendur sem frekast er unnt gegn því hættuspili sem notkun falsaðra lyfja augljóslega er.
Lyfjastofnun vakti einnig máls á þessum vanda fyrir nokkru, sbr. frétt á heimasíðu stofnunarinnar, en við blasir að ólöglegur markaður með fölsuð lyf virðist fara vaxandi og þá sérstaklega á Netinu. Hversu stór svikamyllan er í raun og veru er aftur á móti erfitt að segja nákvæmlega til um. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO telur að jafnvel 10% allra lyfja sem notuð eru í veröldinni séu fölsuð.
Í fréttatilkynningu frá framkvæmdastjórn ESB fyrr á þessu ári kemur fram að sífellt vaxi umfang verslunar með fölsuð lyf á Netinu en jafnframt að framboð falsaðra lyfja á hefðbundnum markaði fari vaxandi. Fram kom í umfjöllun danska viðskiptablaðsins Børsen í síðustu viku að enn sé ekki vitað um dæmi þess að fölsuð lyf hafi ratað í hillur danskra lyfjaverslana en innkaup falsaðra lyfja á Netinu fari sífellt vaxandi. Sömu sögu má segja hér á landi. Engin dæmi eru um fölsuð lyf á hefðbundnum markaði hér innanlands en ógjörningur er að segja til um hvað ratað hefur í hendur landsmanna eftir verslun á Netinu.
EFPIA, samtök frumlyfjaframleiðenda í Evrópu, hafa nú hvatt til frekari samvinnu milli yfirvalda til að stemma stigu við þessari varasömu þróun og jafnframt að á alþjóðlegum vettvangi verði markvissari samvinna í baráttunni gegn lyfjafölsunum, t.a.m. þannig að refsingar verði hertar og komi til álita gagnvart öllu þeim er koma að framleiðslu og sölu falsaðra lyfja. Jafnframt er hvatt til þess að yfirvöld herði eftirlit um leið og starfsfólk, t.d. í tollgæslu, verði betur þjálfað til þess að taka betur og fastar á tilraunum til þess að selja fölsuð lyf. Frumtök taka undir þessi varnaðarorð og hvetja yfirvöld og almenning til þess að vera á varðbergi gagnvart fölsuðum lyfjum, sem ekki aðeins eru ólögleg en jafnframt í besta falli gagnslaus og í versta falli hættuleg heilsu fólks.