Umræða um hátt lyfjaverð
Samkomulag er í gildi milli heilbrigðisyfirvalda og framleiðenda frumlyfja frá árinu 2004 sem felur í sér lækkun lyfjaverðs á Íslandi til samræmis við lyfjaverð á Norðurlöndunum. Að samkomulaginu standa framleiðendur frumlyfja, en u.þ.b. 85% lyfja á markaði hér á landi eru frumlyf.
Framleiðendur samheitalyfja, líkt og Actavis, standa ekki að því samkomulagi. Heilbrigðisráðherra og formanni lyfjagreiðslunefndar er fullkunnugt um samkomulagið við framleiðendur frumlyfja og við það hefur fyllilega verið staðið. Með því hefur náðst mikill árangur hvað varðar lyfjaverð almennt á Íslandi og mikilvægt að það samkomulag fái notið sannmælis. Heilbrigðisráðherra sagði t.a.m. á Alþingi í febrúar s.l. lyfjafyrirtækin eiga hrós skilið fyrir að hafa staðið við samkomulagið. Í máli ráðherra kom fram að heildsöluverð lyfja hér á landi hafi lækkað frá 1. des. 2003 til 1. des. 2005 um tæpa tvo milljarða, úr 10.2 milljörðum króna í 8.4 milljarða.
Það er á grundvelli þessa samkomulags sem verð á frumlyfjum hér á landi hefur lækkað til samræmis við okkar helstu samanburðarlönd og það er því óskiljanlegt að yfirvöld heilbrigðismála skuli nú kjósa að fjalla um lyfjamarkaðinn í heild sinni á jafn óvandaðan og ófaglegan hátt og fjölmiðlaumfjöllun í gær og í dag ber vitni um.
<<Til baka