Geisladiskar og lyf
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu fjármálaráðherra að lækka virðiskaukaskatt af geisladiskum úr 24,5% í 7%. Allar skattalækkanir eru ánægjuefni og því ber að fagna þessari lækkun sem öðrum. Samtökum framleiðenda frumlyfja þykir þó skjóta nokkuð skökku við að í allri þeirri umræðu sem verið hefur að undanförnu um lækkun virðiskaukaskatt á hinar ýmsu nauðsynjar, skuli ekki vera rætt um lækkkun virðisaukaskatts á lyfjum. Lyf bera 24,5% virðisaukaskatt líkt og hver önnur munaðarvara. Lyf eru því væntanlega munaðarvara, en ekki gosdrykkir og geisladiskar. Í það minnsta hljóta það að vera skilaboð stjórnvalda til almennings.
Mikill árangur hefur náðst á undanförnum árum varðandi lækkun lyfjaverðs. Sá árangur hefur náðst á grundvelli samkomulags heilbrigðisyfirvalda og frumlyfjaframleiðenda. Nú er svo komið að þegar verð í heildsölu hér á landi er borið saman við heildsöluverð í Danmörku kemur í ljós að frumlyf hér á landi eru nú að meðaltali 6,4% ódýrari en í Danmörku. Þessi niðurstaða er ekki síst athyglisverð í ljósi þess að Danmörk er það land sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa helst valið sem samanburðarland í opinberri umræðu.
Ríkissjóður hefur notið góðs af þessum mikla árangri en ekki er hægt að segja hið saman um hinn almenna kaupanda, þar eð lækkunin hefur ekki komið fram í hluta sjúklings í lyfjaverði. Og nú, í allri þeirri umræðu sem átt hefur sér stað undanfarin misseri um góða stöðu ríkissjóðs, í umræðunni um að nú sé tækifæri til þess að lækka virðisaukaskatt á matvælum, gosdrykkjum og geisladiskum, svo eitthvað sé neft, er lag að lækka um leið virðisaukaskatt á lyfjum. Með því væri á einfaldan hátt haldið áfram á þeirri braut að lækka skatta í landinu og um leið á einfaldan hátt stigið áþreifanlegt skref í átt til enn lægra lyfjaverðs hér á landi, skref sem almenningur yrði svo sannarlega var við.
____________________
Jakob Falur Garðarsson
<<Til baka