Frumtök á twitter

Samið við GSK um bóluefni

Í dag, föstudag, undirrituðu Hjörleifur Þórarinsson framkvæmdastjóri GlaxoSmithKline (GSK) og Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, samkomulag sem kveður á um afhendingu bóluefnis gegn heimsfaraldri inflúensu. Samkomulagið tryggir aðgengi að allt að 300.000 skömmtum af bóluefni sem nota á gegn alheimsfaraldri inflúensu. Bóluefnið verður framleitt í verksmiðjum GSK í Evrópu.

Ísland í fararbroddi
Ísland er meðal fyrstu ríkja í heiminum sem GlaxoSmithKline gerir samkomulag við um kaup á bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu en þessi samningur er samhljóða samningi sem dönsk stjórnvöld gerðu við fyrirtækið og er gildistími hans til ársins 2011.

„Eins og málum er háttað telur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin að við séum á svokölluðu viðbúnaðarstigi og hvetur hún þjóðir heims til að huga að viðbúnaðar- og viðbragðsáætlunum við heimsfaraldri inflúensu. Stjórnvöld hér á landi hafa undanfarin ár unnið að slíkum viðbúnaði. Afar mikilvægur liður undirbúningsins er að tryggja landsmönnum bóluefni eins skjótt og auðið er “ segir Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra. Hún bætir við, „það er mér því ánægjuefni að geta nú undirritað samning við lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline um að það tryggi Íslendingum 300.000 skammta af slíku bóluefni eins skjótt og auðið er eftir að framleiðsla hefst.“

„Stjórnvöld á Íslandi hafa verið framsýn og fyrirhyggjusöm í undirbúningi gegn heimsfaraldri inflúensu og gerðu sér fljótt grein fyrir mikilvægi þess að tryggja aðgengi að bóluefni fyrir íslensku þjóðina. Ég er ánægður með að yfirvöld hér á landi völdu GSK sem samstarfsaðila. Valið gefur til kynna tiltrú á gæði bóluefnanna okkar, á þá tækni sem við búum yfir til að tryggja gott ónæmissvar og getu okkar til að afhenda tilbúið bóluefni, komi til heimsfaraldurs,“ segir Hjörleifur Þórarinsson, framkvæmdastjóri GSK á Íslandi.

„Nú standa yfir rannsóknir og prófanir hjá GSK á bóluefni gegn H5N1 veirunni sem veldur inflúensu í fuglum og sem hefur smitað menn í örfáum tilfellum. Þetta bóluefni hefur verið prófað hjá yfir 4.000 einstaklingum og hefur heilbrigðisyfirvöldum nú verið send umsókn um skráningu og leyfi til notkunar,“ segir Hjörleifur.

Komi til heimsfaraldurs inflúensu er nauðsynlegt, svo ónæmisaðgerðin verði virk, að nota bóluefni sem samsvarar þeirri veiru sem veldur heimsfaraldrinum. Samkomlagið kveður á um forkaupsrétt á allt að 300.000 skömmtum af bóluefni gegn heimsfaraldri, sem GSK mun framleiða, að fengnum upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) um gerð veirustofnsins.

Miklir möguleikar með nýjum ónæmisglæði.
Bóluefni GSK gegn fuglainflúensuveirunni og heimsfaraldri inflúensu eru skilgreind sem annarrar kynslóðar bóluefni, en í þeim er að finna nýja tækni við ónæmisglæðingu. Þessi tækni er einnig notuð í nýju bóluefni gegn leghálskrabbameini frá GSK. Ónæmisglæðirinn er sérstakt efnasamband sem eykur ónæmissvar líkamans og gerir auk þess mögulegt að veita vörn gegn náskyldum veirustofnum (sk. krossónæmi).

Í rannsóknum á bóluefni gegn fuglainflúensu sást mjög öflugt ónæmissvar hjá meira en 80% þátttakenda sem fengu 3,5 míkrógröm af H5N1 ónæmisvaka. Takmörkuð framleiðslugeta er algengt vandamál við framleiðslu á inflúensubóluefnum. Á grundvelli þessarar nýju tækni við ónæmisglæðingu og mögnun ónæmissvars, er kleift að nota minna magn af ónæmisvaka í hvern skammt og framleiða fleiri skammta. Það er því mögulegt að bjóða mun fleiri einstaklingum áhrifaríka bólusetningu komi til heimsfaraldurs inflúensu.

Gríðarlegar fjárfestingar GlaxoSmithKline
GSK hefur skuldbundið sig til að veita ríkisstjórnum og heilbrigðisyfirvöldum stuðning við að takast á við alheimsfaraldur – bæði áður en hann brýst út og eftir að staðfest er að heimsfaraldur er á ferðinni. Verulegar framfarir hafa átt sér stað hjá fyrirtækinu hvað varðar þróun og rannsóknir á bóluefnum og er mikið starf unnið á þeim vettvangi. Fjárfesting GSK í þróun bóluefnis gegn fuglaflensu og aukinni afkastagetu við framleiðslu inflúensubóluefna og veirulyfsins Relenza nemur um 180 milljörðum íslenskra króna.

Þess má geta að stjórnvöld hafa gert samninga um kaup á Relenza og fleiri inflúensulyfjum, dreypilyfjum og hlífðarbúnaði vegna hugsanlegs heimsfaraldurs inflúensu. Einnig er unnið að því að tryggja nægar birgðir af nauðsynlegustu lyfjum í landinu til að standast alvarlegan heimsfaldur á borð við inflúensu.

Framkvæmd samningsins við GlaxoSmithKline verður á höndum sóttvarnalæknis
<<Til baka Bookmark and Share

Björt framtíð

Aukin þekking, almenn heilsuefling, forvarnir og fjölbreyttar meðferðarlausnir eru okkur nauðsynlegar til að skapa bjarta framtíð.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.