Frumtök.is
Fréttir
Greinar
Tölur og gögn
Samstarfsaðilar
Siðareglur
Um Frumtök
About Frumtök
Frumtök á twitter
Til áréttingar
Eins og komið hefur fram er samkomulag í gildi milli heilbrigðisyfirvalda og framleiðenda frumlyfja sem felur í sér lækkun lyfjaverðs á Íslandi. Nú hefur verið unnin úr opinberum lyfjaverðskrám samanburður á íslensku og dönsku verðskránum sem leiðir í ljós að 1.484 vörunúmer eru sambærileg. Heildarveltan hér á landi í þessum vörunúmerum er 5.262.268.617 kr. sem er 3,23% lægri tala en sambærileg velta gæfi í Danmörku. Sparnaðurinn af því að kaupa þessi lyf á Íslandi frekar en í Danmörku er því rúmar 175 milljónir króna. Frumlyf á markaði hér á landi eru því sannanlega ódýrari en í Danmörku.
Jafnframt er áréttað að fyrir viku síðan var haft eftir landlækni að tengsl milli helstu lyfjainnflytjenda á landinu og tveggja keðja í smásölu lyfja væri ástæða fyrir háu lyfjaverði hér á landi. Frumtök hörmuðu þá þann órökstudda málflutning og væntu þess að landlæknir færði rök fyrir ummælum sínum ella dragi þau til baka. Við því hefur landlæknir ekki orðið.
<<Til baka
Björt framtíð
Aukin þekking, almenn heilsuefling, forvarnir og fjölbreyttar meðferðarlausnir eru okkur nauðsynlegar til að skapa bjarta framtíð.
Skráðu þig á póstlistann
Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.
Nafn:
Netfang: