Frumtök á twitter

Áfram skal greiðsluþátttökunni umbylt - nú er það beinþynningin

Nýlega er afstaðin afmælishátíð Læknafélags Reykjavíkur í tilefni 100 ára afmælis félagsins. Af því tilefni var gefið út afmælisrit og því dreift til allra landsmanna. Í því ljósi að um þessar mundir er verið að kollvarpa greiðsluþátttöku hins opinbera í lyfjum er athyglisvert að staldra við stutt viðtal við Aðalstein Guðmundsson, öldrunarlækni á Landspítalanum, í afmælisritinu. Í viðtalinu við Aðalstein kemur fram að almennt þurfi einstaklingar ekki að þjást af beinþynningu. Þá rekur Aðalsteinn að á seinni árum hafi ekki aðeins aukist þekking á orsökum beinþynningar heldur hafi einnig opnast fleiri möguleikar á sértækri meðferð með lyfjum. Og svo er komið að kjarna málsins, þ.e. að Aðalsteinn segir að búast megi við umtalsverðum framförum í lyfjameðferð beinþynningar á komandi árum.

Hér er rétt að staldra við, því að 1. nóvember n.k. verður greiðsluþátttöku beinþynningarlyfja breytt í grundvallaratriðum, líkt og þegar hefur verið gert varðandi blóðþrýstings- og blóðfitulækkandi lyf og magalyf, þannig að í meginatriðum verður greiðsluþátttaka einungis í ódýrasta lyfinu. Önnur lyf munu því ekki njóta greiðsluþátttöku – hvað þá að ný lyf hafi möguleika á því að komast að. Og það er það alvarlegasta við breytingarnar á greiðsluþátttökukerfinu almennt – það er að ný lyf, sem sannarlega eru betri og þjóðhagslega hagkvæmari, eru ekki og verða að óbreyttu ekki aðgengileg fyrir íslenskan almenning. Og því er kannski rétt að setja spurningamerki við væntingar Aðalsteins? Er kannski svo komið fyrir okkur, að Íslendingar megi ekki búast við umtalsverðum framförum í lyfjameðferð á komandi árum - almennt?
<<Til baka Bookmark and Share

Björt framtíð

Aukin þekking, almenn heilsuefling, forvarnir og fjölbreyttar meðferðarlausnir eru okkur nauðsynlegar til að skapa bjarta framtíð.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.