
Þann
10. október verður Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn haldinn en síðan 1992 hefur verið haldið upp á daginn þó að á Íslandi hafi dagurinn ekki verið tekinn upp fyrr en 1996. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á geðheilbrigðismálum, stuðla að umræðu um geðheilbrigðismál, fræða og vinna gegn algengum fordómum gegn geðsjúkum.
Það er full þörf á því að taka Alþjóða geðheilbrigðisdaginn alvarlega á Íslandi. Undanfarin misseri hefur umræða um ýmsa algenga sjúkdóma eins og þunglyndi farið af stað, oft með töluverðri slagsíðu fordóma.
Frumtök taka undir áskoranir um að nauðsynlegt sé að dýpka umræðuna um geðsjúkdóma. Þunglyndi er algengasti geðsjúkdómurinn og getur hann lagst á fólk á öllum aldri og bæði kyn. Þunglyndi er einnig sá sjúkdómur sem hvað mest hefur verið í deiglunni.
Um þunglyndi og marga aðra geðsjúkdóma er hægt að segja að aðgangur að lyfjum sé einn áhrifaríkasti lykillinn að bata. Þar sem þunglyndi er algengt en er þó sjúkdómur sem svarar oftast viðtals- eða lyfjameðferð, sem ekki er erfið eða hættuleg, er aðgangurinn að slíkri meðferð enn mikilvægari en ella. Lykilatriði er að lyf séu ávallt aðgengileg svo lengi sem þau eru besti kosturinn.
Úrræði fyrir sjúklinga og aðstandendur sem glíma við geðrænan vanda fer fjölgandi enda til mikils að vinna svo takast megi að virkja fólk til verka. Geðheilbrigðisdagurinn styrkir frekari skref í þá átt að líf með geðsjúkdómum raski lífi sjúklinga og aðstandenda sem minnst.