
Dagur Rauða borðans, alþjóðlegi alnæmisdagurinn er í dag, 1. desember. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin áætlar að um 34 milljónir manns séu með HIV eða alnæmi í heiminum í dag. Nú hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hrint af stað áætluninni „
Náum núllpunkti“ sem verður í framkvæmd til ársins 2015. En með henni vonast stofnunin til að eyða fordómum í garð HIV smitaðra auk þess að uppræta dauðsföll af völdum veirunnar og koma í veg fyrir að ný smit greinist. Frá þessu er greint á vefmiðlinum
Mbl.is.
Þróunin á Íslandi undanfarin tvö ár er áhyggjuefni því aldrei hafa fleiri Íslendingar greinst með HIV. Í fyrra voru þeir 24 og það sem af er þessu ári hafa 20 einstaklingar greinst. Auk þess er einnig aukning í að eldra fólk greinist með HIV að sögn Más Kristjánssonar smitsjúkdómalæknis á Landsspítalanum og í ár hafa 4 einstaklingar yfir sextugt greinst með alnæmi.
Í viðtali við Morgunblaðið segir Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV á Íslandi að viðhorf samfélagsins í garð smitaðra einkennist um of af því að þetta sé sjúkdómur sem einkum leggist á samkynhneigða og fíkla: „Sá hópur sem þarf fræðslu og er í mestri áhættunni er þetta hefðbundna fólk, af því að það heldur að þetta sé sjúkdómur sprautufíkla og homma. Það koma hingað ungir menn og konur gapandi af undrun yfir því að vera komin með HIV.“
Húsnæði HIV á Íslandi er á Hverfisgötu 69 og þangað getur fólk leitað til að fá ráðgjöf og stuðning auk þess sem samtökin standa fyrir reglulegu hópastarfi til stuðnings HIV smituðum og aðstandendum þeirra. Líkt og undanfarin ár verður opið hús hjá samtökunum í dag milli kl. 16-19 þar sem boðið verður upp á kaffi og meðlæti.