Frumtök á twitter

Alþjóðlegi hjartadagurinn á sunnudaginn. Taktu þátt í hlaupi eða göngu!

Á sunnudaginn, 25. september, er hinn árlegi Alþjóðlegi hjartadagur haldinn hátíðlegur. Hjartaheill hvetur af því tilefni alla til að huga að hreyfingu og hollu mataræði. Auðvitað er rétt að huga að hreyfingu og hollu mataræði alla daga en þó sérstaklega á hjartadeginum.

Í samstarfi við Heilaheill og Hjartavernd standa Hjartaheill fyrir hjartadagshlaupi 5 og 10 km. Skráning í hlaupið fer fram á www.hlaup.is. Fyrir þá sem vilja fara varlega af stað er kjörið að mæta í 3 km göngu sem ekki þarf að skrá sig í. Gangan fer af stað kl. 10:30 en hlaupið hefst kl. 10:00.

Hlaupið og gangan fara fram við Kópavogsvöll við Dalsmára samkvæmt upplýsingum frá Hjartaheill.



<<Til baka Bookmark and Share

Björt framtíð

Aukin þekking, almenn heilsuefling, forvarnir og fjölbreyttar meðferðarlausnir eru okkur nauðsynlegar til að skapa bjarta framtíð.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.