Frumtök á twitter

Alþjóðlegur baráttudagur gegn krabbameini 4. febrúar

Í yfir 100 löndum er alþjóðlegi krabbameinsdagurinn haldinn til að þrýsta á um að baráttan gegn krabbameini verði pólitískt viðfangsefni um heim allan.

Yfir 350 samtök og stofnanir standa að deginum og er reynt að vekja almenning til umhugsunar um krabbameinsvarnir en ekki síður er farið í saumana á heilbrigðis- og félagsþjónustu þeirra sjúklinga sem greinast með krabbamein.

Lífsstíll vesturlandabúa er flókinn og meinin sem hrjá nútímamanninn mýmörg. Krabbamein er ein algengasta dánarorsök fólks um allan heim. Ef ekki verður unnið af meiri krafti í forvörnum, læknisþjónustu og lyfjaþróun munu hátt í 100 milljónir manna láta lífið á árabilinu 2005-2015 af völdum krabbameins. Þetta er staðan ef ekki næst neinn árangur í baráttunni.

Þema baráttunnar í ár eru aðferðir sem geta létt sjúkdómsbyrði vegna krabbameina. Þar eru forvarnir einn mikilvægasti þátturinn. Mikið er hugað að því hvernig hægt er að tryggja sem mest lífsgæði þeirra sem greinast með krabbamein.

Í tilefni dagsins er ýmislegt gert til að vekja athygli á málinu. Krabbameinsfélag Íslands hefur boðað til ráðstefnunnar ”Stattu með mér” en þar verður fjallað um stuðning, samskipti og reynslu krabbameinssjúklinga og aðstandenda.

Þá skrifaði Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra grein í Fréttablaðið í dag en þar kemur fram að þrír til fjórir Íslendingar greinist með krabbamein á hverjum degi.

Þó árangur hafi náðst í forvarnarstarfi á Íslandi er mikið verk óunnið. Það er því gleðilegt að velferðarráðherra taki af skarið og setti af stað vinnu við sérstaka aðgerðaráætlun sem marki stefnuna í baráttu íslensks heilbrigðiskerfis við krabbamein.

<<Til baka Bookmark and Share

Björt framtíð

Aukin þekking, almenn heilsuefling, forvarnir og fjölbreyttar meðferðarlausnir eru okkur nauðsynlegar til að skapa bjarta framtíð.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.