Stjórnarnefnd samtaka um gæði lyfja og heilsufar (EDQM) hefur nýverið bæst í hóp þeirra samtaka sem berjast gegn lyfjafölsun í Evrópu. Þetta var tilkynnt á fundi í Strasbourg á dögunum þar sem nýtt kóðunarkerfi var ennfremur innleitt. Á fundinum var ennfremur ályktað um nauðsyn þess að þróa áfram skilvirkar lausnir sem geta nýst hagsmunaaðilum í baráttunni gegn lyfjafölsunum, eins og með innleiðingu nýrra kóðunarkerfa.
Í undirbúningi er ennfremur unnið að innleiðingu á kerfi sem hefur það að markmiði að sporna gegn því að fölsuð lyf eigi greiða leið inn á evrópskan lyfjamarkað sem er mikilvægur liður í að tryggja öryggi sjúklinga. Að því tilefni sagði Heins Kobelt, framkvæmdastjóri Evrópusviðs EAEPC sem er aðili að verkefninu: „Við trúum því að kóðunarkerfin séu öflugt verkfæri í baráttunni við að grafa undan þeim viðskiptamódelum sem hafa lyfjafölsun að markmiði. Auk þess sem kerfið eykur ennfremur öryggi evrópskra sjúklinga.“
Richard Bergström, framkvæmdastjóri EFPIA, tók í svipaðan streng og sagði m.a.: „Við vonumst til að geta þróað nýtt kerfi sem tryggir öryggi sjúklinga og er jafnframt skilvirkt og auðvelt að samþætta við þau sambærileg kerfi sem fyrir eru.“