Frumtök á twitter

Ályktun frá Hjartaheill

hhÁ fundi stjórnar Hjartaheilla sem haldinn var 11. maí s.l. er harmað það ástand sem er nú að skapast á Landspítala háskólasjúkrahúsi í biðlistamálum er varðar hjartaskurðlækningar.
Nú eru um 30 manns á biðlista og biðtími allt að 8 til 10 vikur. 
Í ljósi þess góða árangurs sem náðst hefur í hjartalækningum á Íslandi undanfarin ár má EKKI slaka á í þessum efnum en stór þáttur í því góða átaki að eyða biðlistunum var átak Hjartaheilla og þjóðarinnar allrar að koma upp nýju hjartaþræðingartæki við spítalann.
Stjórn Hjartaheilla hvetur heilbrigðisráðherra og stjórnendur Landspítalans að beita öllum ráðum til að eyða þessum biðlista.
<<Til baka Bookmark and Share

Björt framtíð

Aukin þekking, almenn heilsuefling, forvarnir og fjölbreyttar meðferðarlausnir eru okkur nauðsynlegar til að skapa bjarta framtíð.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.