Frumtök á twitter

Andlit Alzheimers

Alþjóðadagur Alzheimer er 21. september og er þema dagsins í ár hin mörgu andlit elliglapa.

Alzheimer er hrörnunarsjúkdómur sem kenndur er við Alois Alzheimer, lækninn sem uppgötvaði sjúkdóminn 1906. Sjúkdómurinn orsakast af hrörnunarbreytingum í miðtaugakerfinu og á meðal einkenna eru minnisleysi, skapbreytingar, tap á orðaforða eða svokallað málstol og ruglingur. Alzheimer reynist bæði sjúklingum og aðstandendum mjög erfiður enda verða sjúklingar fyrir svo miklum andlegum breytingum að þeir geta verið óþekkjanlegir. Aðstandendur tala stundum um að þekkja ekki nákomið fólk fyrir sömu manneskjuna.

Í heiminum er talið að um 24 milljónir manna þjáist af Alzheimer og í dag eru lyfjafyrirtæki víða um heiminn með tugir lyfja í þróun sem vonandi geta nýst í baráttunni við Alzheimer og elliglöp ýmiskonar.

Sjúkdómurinn herjar helst á miðaldra eða aldrað fólk og er talinn vera algengasti heilasjúkdómurinn. Félagsleg áhrif sjúkdómsins eru gríðarleg þar sem umönnun einstaklingana er erfið og tekur sinn toll af aðstandendum.

Á alþjóðadegi Alzheimer er markmiðið að styðja við starf Alzheimerssamtaka um allan heim og vekja fólk til meðvitundar um þennan illskeytta sjúkdóm.

Umfjöllun um sjúkdóminn og skilningur á þeim vanda sem hann veldur er lykilatriði í því að finna leiðir til baráttu gegn sjúkdómnum. Með uppgötvunum í lyfjarannsóknum er stefnt að því að hefta framgang sjúkdómsins eða koma í veg fyrir hann svo ekki komi til langvarandi dvöl á hjúkrunarheimili sem í dag er algengur fylgifiskur Alzheimer á alvarlegu stigi.


<<Til baka Bookmark and Share

Björt framtíð

Aukin þekking, almenn heilsuefling, forvarnir og fjölbreyttar meðferðarlausnir eru okkur nauðsynlegar til að skapa bjarta framtíð.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.