Frumtök á twitter

Baráttan við berkla heldur áfram

Læknar án landamæra biðla um þessar mundir til berklasjúklinga og biðja þá um að blogga um sjúkdóminn svo safna megi upplýsingum um hverjar þarfir þeirra eru.
Fólk sem greinist með berkla í dag virðist ekki bregðast við fjöllyfjameðferð sem skyldi en það er mikið áhyggjuefni hve mótstaða berkla er orðin mikil gegn lyfjum.

Það eru ekki svo margir áratugir síðan að berklar voru ein helsta heilbrigðisógnin í vestrænum samfélögum. Fjöldi Íslendinga fékk berkla og lést af þeirra völdum enda voru berklar helsta dánarorsökin í Reykjavík á árunum 1911 til 1925. Berklahælið á Vífilstöðum var meðal annars reist 5. september 1910 til að sporna við útbreiðslu berkla.

Lyfjaþolnir sýklar nútímans valda hinsvegar ítrekuðum vandræðum og eru heilbrigðisógn á heimsvísu. Ný berklalyf hafa ekki verið fundin upp í langan tíma og því getur verið mun erfiðara að eiga við lyfjaþolna berkla.

Rétt er að taka fram að berklar berast með þeim sem eru smitaðir og hafa sjúkdómseinkenni, til dæmis með hósta. Það er því mikilvægt að gæta almenns hreinlætis til að verjast berklum.

Það að berklar séu farnir að láta á sér kræla á ný minnir okkur á að sú vinna sem lögð hefur verið í lyfjaþróun og rannsóknir getur verið unnin fyrir gíg ef ekki er staðið rétt að lyfjameðferð.

Þar sem berklar eru smitsjúkdómur þá fylgja sjúkdóminum einnig félagsleg vandamál. Áður fyrr tíðkaðist það að loka fólk af á berklahæli líkt og gert var á Vífilstöðum og víðar. Það var gert bæði til að einangra heilbrigða einstaklinga frá smiti og eins til að reyna að hjúkra sjúkum til heilsu. En einangrun í nútímanum getur verið afar slæm félagslega. Margir þurfa að sjá fjölskyldu sinni farboða eða eru í hættu á að tapa vinnunni á meðan á einangrun stendur.

Læknar án landamæra hafa því einnig áhuga á að heyra frá sjúklingum hvað félagslega þáttinn varðar. Með það fyrir augum hefur vefsvæðið „TB and Me“ verið sett á laggirnar en þar geta sjúklingar bloggað að vild.

Berklasjúklingar finnast víða um heiminn og hefur útbreiðsla þeirra verið töluverð í lýðveldum fyrrverandi austantjaldslanda. Á meðal bloggara hjá Læknum án landamæra eru berklasjúklingar frá Ástralíu, Bretlandi, Indlandi og Úganda.

Ekki liggja fyrir áreiðanlegar tölur fyrir berklasýkingar nema frá árinu 2008 en það ár voru tilfellin 440 þúsund í 45 löndum. Talið er að tilfellum muni fjölga og því er framtak Lækna án landamæra hiklaust tímabært.

<<Til baka Bookmark and Share

Björt framtíð

Aukin þekking, almenn heilsuefling, forvarnir og fjölbreyttar meðferðarlausnir eru okkur nauðsynlegar til að skapa bjarta framtíð.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.