Frumtök á twitter

Danir hafa áhyggjur af sölu ólöglegra lyfja

Bertel Haarder, ráðherra innanríkis- og heilbrigðismála í Danmörku, hefur lýst yfir áformum sínum um að setja ný lög sem ætlað er að taka á ólöglegri lyfjasölu.

Lif, systursamtök Frumtaka í Danmörku, hafa lýst ánægju með aðgerðirnar enda er talið að lögin muni tryggja öryggi sjúklinga á víðsjárverðum tímum. Vandinn liggur í því í dag að auðvelt er að panta lyf á veraldarvefnum og glæpamenn nýta sér það og selja fölsu lyf með hjálp vefsins.

Ástæða þess glæpamenn hafa í auknu mæli einbeitt sér að fölsun lyfja er sú að ekki eru sömu viðurlög við lyfjafölsun og t.d. við eiturlyfjaframleiðslu. Þó er í báðum tilfellum um ólögleg lyf að ræða. Það er því mun áhættuminna fyrir glæpasamtök að einbeita sér að framleiðslu ólöglegra lyfja en eiturlyfjaframleiðslu.

Haft er eftir Haarder að erfitt sé fyrir einstaka neytanda að sjá hvort lyf sem boðið er til sölu á vefsíðu sé ólöglegt og hvaða áhætta fylgi lyfinu. Haarder segir því mikilvægt að gera neytendum kleift að fá greinargóðar upplýsingar um lyf en einnig að reynt sé að koma í veg fyrir sölu ólöglegra lyfja eins og framast er unnt.

Aðgerðir Dana eru að mörgu leiti sambærilegar þeim aðgerðum sem Evrópusambandi hyggst fara í. Lögð verður áhersla á það að hægt verði að loka heimasíðum sem bjóði ólögleg lyf með því að hafa samband við hýsingaraðila sem eru staðsettir utan evrópska efnahagssvæðisins. Ef ekki er farið eftir tilmælum danskra yfirvalda verður hægt að beina kærum til fógetaembættisins.

Vonast er til þess að algabreytingarnar munu gera frumlyfjaframleiðendum kleift að framkvæma prufur á lyfjum sem seld eru á netinu til að staðfesta uppruna þeirra. Haarder segir að þannig geti lyfjageirinn tekið þátt í að afhjúpa fölsuð lyf.

Lyfjastofnun hefur annað slagið varað við fölsuðum lyfjum á Íslandi. Það uppgötvast oftast að einstaklingar hafa keypt fölsuð lyf við hefðbundið eftirlit með sjúklingum, eða þegar lyfin hafa ekki virkað á sjúklinga. Þá getur komið fyrir að ábendingar komi frá tollayfirvöldum.

Í október á síðasta ári tóku íslensk tollayfirvöld þátt í viðamikilli aðgerð um allan heim sem miðaði að því að uppræta fölsuð lyf. Í þeirri aðgerð voru 694 vefsvæði skoðuð sem buðu upp á ólögleg efni var 290 þeirra þegar lokað. 268 þúsund pakkar voru rannsakaðir og var hald lagt á 11 þúsund pakka vegna gruns um að þeir innihéldu fölsuð lyf. Í pökkunum fundust yfir ein milljón ólöglegra og falsaðra lyfja, þar á meðal voru fölsuð lyf sem eru sjúklingum lífs- eða bráðnauðsynleg eins og sýklalyf, krabbameinslyf, þunglyndislyf, sterar og lyf við flogaveiki.

<<Til baka Bookmark and Share

Hvernig tengjast Frumtök þér?

Traustur aðgangur að góðum lyfjum skiptir þig sköpum. Aðeins þannig er heilsufarslegt öryggi þitt tryggt.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.