
Það er ekki bara á Íslandi sem umræðan um greiðsluþátttökukerfi vegna lyfja er áberandi. Í Danmörku eru svipaðir hlutir í deiglunni en núverandi kerfi í Danmörku gerir læknum kleift að sækja um undanþágur fyrir þau lyf sem greiðsluþátttaka hefur verið felld úr gildi fyrir.
Þetta er ekki ósvipað því fyrirkomulagi sem er við lýði hér á landi eftir síðustu breytingar á greiðsluþátttökukerfinu m.a. vegna hjarta- og æðasjúkdómalyfja, en greiðsluþátttöku þessara lyfja var breytt í grundvallaratriðum þann 1. mars 2009.
Í Danmörku hefur fyrirkomulagið nýlega verið rannsakað af
YouGov Zapera fyrir
systursamtök Frumtaka og benda niðurstöðurnar eindregið til þess að langt því frá allir nýti sér þann möguleika að sækja um undanþágu.
Í könnuninni kemur það fram að 18% lækna hafi ekki rætt um möguleika þess að sækja um undanþágu við sjúklinga. Niðurstöðurnar benda til þess að með þessu sé grafið undan hinum skandinavíska grundvelli heilbrigðiskerfisins þar sem sjúklingar eiga ekki lengur auðvelt aðgengi að samskonar meðferð.
Frumtök hafa áður lýst yfir
miklum áhyggjum af þeim breytingum sem gerðar voru á íslenska greiðsluþátttökukerfinu. Þær áhyggjur eru ekki ástæðulausar ef staðan er svipuð hér á landi og í Danmörku.