Félag atvinnurekenda gekkst nýverið fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Heilbrigðisþjónusta á Íslandi – langtímahugsun eða skaðlegar skammtímareddingar. Mörg fróðleg erindi voru flutt á ráðstefnunni, þar á meðal af Robin Turner, forstjóra Roche í Danmörku, en Roche er eitt af aðildarfyrirtækjum Frumtaka.
Í erindi sínu fór Robin Turner yfir framtíð frumlyfja á íslenskum heilbrigðismarkaði, frá sínum bæjardyrum séð, og verður að segjast eins og er að í máli hans kom fram að samskipti við íslensk heilbrigðisyfirvöld eru fyrir fyrirtæki sem Roche mikið umhugsunarefni. Glærur hans af fundinum eru hér, en þar má í raun lesa erindi hans í hnotskurn