EFPIA fagnar hugmyndinni um að stofna Evrópuráð fyrir heilbrigðisrannsóknir sem var kynnt á dögunum af Samtökum fyrir rannsóknir á náttúrulyfjum í Evrópu (Alliance for Biomedical Research in Europe) sem er fulltrúi 16 evrópskra rannsóknarsamfélaga sem öll eru leiðandi á sviði rannsókna á náttúrulyfjum (BioMed).
Þessi hvatning til aðgerða að hálfu samtakanna er í samræmi við útgáfu Evrópuráðsins á skýrslu
í tengslum við styrkjaumhverfi áætlunarinnar „Horizon 2020“ sem hefur það að markmiði að stuðla að samkeppnishæfi Evrópu og kemst á framkvæmdastig árið 2014. Richard Bergström, framkvæmdastjóri EFPIA sagði af því tilefni: „Við erum sammála rannsóknarsamfélögunum um að árangur og nýsköpun á sviði heilbrigðisrannsókna krefst langtímaskuldbindingar.
Ég fagna innilega þessu frumkvæði sem svo sannarlega er skref í átt að „Evrópskri heilbrigðisstofnun“. Slík stofnun myndi styrkja bæði markvissar langtímaáætlanir í heilbrigðismálum og hámarka heilbrigðisþjónustu innan Evrópusambandsins og öryggi í meðhöndlun sjúklinga.“
EFPIA og rannsóknarfélögin eiga nú í viðræðum um hvernig skipuleggja eigi Evrópuráð fyrir heilbrigðisrannsóknir til að hámarka árangur innan heilbrigðisgeirans og tryggja öruggt aðgengi íbúa álfunnar að heilbrigðiskerfinu.