Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur í skoðun að gefa út einskonar bólusetningarvegabréf fyrir börn svo koma megi í veg fyrir að börn missi af mikilvægum bólusetningum, til dæmis þegar fluttst eða ferðast er á milli landa.
Samskonar fyrirkomulag hefur um nokkurt skeið verið fyrir hendi varðandi gæludýr og hefur það gefist vel. Þetta kemur fram í Bólusetningarvikunni í Evrópu sem nú stendur yfir.
Fyrirkomulagið myndi auðvelda eftirlit með nauðsynlegum bólusetningum en í þessu tilfelli er gert ráð fyrir að betur sé hægt að fylgjast með bólusetningum í tengslum við ferðalög.
Bólusetningar hafa gjörbreytt ferðalögum. Ferðamannabólusetningar taka á ýmsum algengum sjúkdómum sem enn hefur ekki tekist að útrýma víða um heim þar sem ekki er um almennar forvarnir með bólusetningu að ræða.
Bólusetningar bjarga milljónum
Í frétt á Bylgjunni í vikunni kom fram að árlega sé talið að bólusetningar komi í veg fyrir um þrjár milljónir dauðsfalla í heiminum.
Nú stendur yfir vika sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin tileinkar bólusetningum, m.a. til að vekja athygli á
forvarnargildi bólusetninga en í kjölfar svínainflúensufaraldursins hefur borið nokkuð á hræðsluáróðri gegn bólusetningum.
Haraldur Briem sóttvarnarlæknir benti í viðtali við Bylgjuna á að sem betur fer sé fyrirkomulag bólusetninga á Íslandi gott. En það má gera sér í hugarlund alvarleika þess ef bólusetning skilar ekki árangri því alvarlegir sjúkdómar á borð við mislinga hafa breiðst út, til dæmis í Evrópu, vegna ónógra bólusetninga. Mislingar eru bráðsmitandi veirusjúkdómur en tekist hefur að útrýma þeim á Íslandi með bólusetningum.
Bólusetningar eru meðal annars notaðar til varnar gegn hettusótt, rauðum hundum, lömunarveiki, gulusótt, mænusótt, inflúensu, lifrarbólguveiru B, kóleru, taugaveiki, hundaæði og barnaveiki svo eitthvað sé nefnt.
Þá hefur bólusetningum verið beitt gegn krabbameini og ekki er langt síðan að frumvarp var lagt fram á Alþingi um bólusetningar vegna leghálskrabbameins.