Frumtök á twitter

Evrópuþingið bregst við aukningu á fölsuðum lyfjum


Fölsun lyfja er ört vaxandi vandamál í heiminum í dag. Innan Evrópusambandsins voru til að mynda á síðasta ári gerðar upptækar á fjórða tug milljóna falsaðra lyfjataflna og að meðaltali annan hvern dag finnast fullar ferðatöskur af fölsuðum lyfjum á flugvellinum í Frankfurt.

Fölsuð lyf eru veruleg ógn við heilsu fólks um allan heim. Afar auðvelt er að nálgast lyfin og freisting sjúklinga getur því verið nokkur. Þá kemur það jafnvel fyrir að fölsuð lyf fáist í apótekum í Evrópusambandinu þar sem óprúttnir aðilar sjá sér leik á borði með því að falsa lyfin mjög vandlega sem lyfsalar kaupa svo í góðri trú. Þannig eru dæmi um að fölsuð lyf hafi ratað í formlega dreifingu á meginlandinu.

Gríðarlegur iðnaður virðist hafa vaxið í kringum fölsuð lyf. Árið 2005 gerðu tollayfirvöld í Evrópu upptækar 500 þúsund töflur en árið 2007 voru fjórfalt fleiri töflur gerðar upptækar. Algjör sprenging hefur orðið, því talið er að um 34 milljónir taflna hafi verið gerðar upptækar af tollyfirvöldum á síðasta ári.

Evrópuþingið vinnur nú að hertri löggjöf til að taka á vandanum en þó virðist enn vera ágreiningur í þinginu um leiðir. Sem dæmi má nefna að refsiramminn fyrir að framleiða fölsuð lyf er allt að sex mánaða fangelsi á meðan það getur kostað 5 ára fangelsi að framleiða fíkniefni. Glæpamenn sjá sér því miður hag í því að falsa lyf fyrir markað sem veltir um 35 milljörðum evra á hverju ári.

Hér má sjá myndband á vef Europarl TV þar sem fjallað er um vandamálið.
<<Til baka Bookmark and Share

Hvaða máli skipta lyf?

Rétt lyf eru jafn mikilvæg og rétt sjúkdómsgreining. Lyf geta gert fólki að yfirstíga sjúkdóma sem annars væru óyfirstíganlegir.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.