
Evrópuþingið hefur samþykkt nýja
tilskipun til verndar sjúklingum gegn fölsuðum lyfjum. Tilskipunin ryður brautina fyrir aðrar nýjar öryggisráðstafanir, þar á meðal öruggisbúnað á lyfjapakkningar og öflugra eftirlitskerfi tengt lyfjasölu á Netinu.
Áætlað er að um 1% lyfja sem seld eru í Evrópu eftir löglegum leiðum séu fölsuð. Sérfræðingar kalla þessi lyf hljóðláta morðingja, ýmist vegna þess að þau virka ekki eða innihalda skaðleg efni.
Í
frétt BBC af málinu segir að Evrópuráðið muni nú fara í saumana á tilskipuninni og geti gert á henni breytingar áður en hún verði að lögum. Lokaniðurstaðan verði svo að lögum í aðildarríkjum sambandsins innan tveggja ára.
Bresku lyfsalasamtökin segja lagasetninguna ætlaða til að draga úr áhættu vegna falsaðra lyfja sem komist í hendur sjúklinga, með öflugu kerfi sem staðfesti uppruna vörunnar, auk nýs öryggisbúnaðar á lyfjapakkningum.
Lykillinn að kerfinu sé nýtt strikamerki á pakkningum af ávísuðum lyfjum sem sé sett í gegnum skanna og þannig megi sannreyna uppruna lyfjanna.