Frumtök á twitter

Fölsuð lyf: Tíu grundvallaratriði

Að falsa lyf er glæpur og innan lyfjaiðnaðarins er lögð sérstaklega þung áhersla á að takast á við það vandamál sem fölsun lyfja er með öllum ráðum. Þeir sem stunda glæpastarfsemi af þessu tagi eru alvarleg ógn við almannaheilbrigði og stunda starfsemi sem er á engan hátt minni glæpastarfsemi en framleiðsla og sala fíkniefna. Á vegum Alþjóðasamtaka lyfjaframleiðenda hafa verið tekin saman í hnotskurn tíu grundvallaratriði sem fjalla um þennan ört vaxandi vanda sem fölsuð lyf eru, en tölfræðileg gögn sýna að vandamálið fer ört vaxandi. Grundvallaratriðin tíu eru enn sem komið er eingöngu aðgengileg á ensku, en verða sett hér á vefinn innan skamms á íslensku.
<<Til baka Bookmark and Share

Björt framtíð

Aukin þekking, almenn heilsuefling, forvarnir og fjölbreyttar meðferðarlausnir eru okkur nauðsynlegar til að skapa bjarta framtíð.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.