FRUMTÖK
Þau eru fleyg ummæli forstjóra Bandarísku einkaleyfastofunnar í upphafi 20. aldar en sagan segir að hann hafi lagt til að stofnuninni yrði lokað þar sem búið væri að finna upp alla nauðsynlega hluti og ekki væri fyrirséð að hægt væri að uppgötva fleira.
Ef farið er fljótt yfir sögu þá reyndist hann ekki sannspár því framfarir á sviði lyfja- og læknisfræði hafa verið stórstígar á 20. öldinni og öll þau lyf sem við þekkjum í dag hafa orðið til á þeim tíma. Nú á 21. öldinni er þekking á sviði lífvísinda að opna nýjar dyr og möguleikar á betri og markvissari meðferð sjúkdóma og forvarnir gegn þeim hafa aldrei verið fleiri. Það er á þessum vettvangi sem frumlyfjafyrirtæki starfa. Frumlyf er það lyf kallað sem inniheldur nýtt virkt efni sem viðkomandi lyfjafyrirtæki og samstarfsaðilar þess hafa uppgötvað og þróað. Þróunartími nýs frumlyfs er að jafnaði um 12-15 ár og kostnaður er metinn á um 50 milljarða króna.
Nýverið voru Samtök framleiðenda frumlyfja á Íslandi stofnuð og er heiti samtakanna Frumtök. Tilgangur Frumtaka er að efla og dýpka umræðu um lyfjamál og að gæta hagsmuna framleiðenda frumlyfja á Íslandi sem og á alþjóðavísu. Einnig að stuðla að rannsóknum og þróun lyfja og annast sameiginleg mál frumlyfjaframleiðenda hér á landi.
Meðal stofnaðila Samtaka framleiðenda frumlyfja eru öll helstu frumlyfjafyrirtæki heims og umboðsfyrirtæki þeirra, auk þeirra sem sinna rannsóknum og þróun á þessu sviði hér á landi, s.s. Íslensk erfðagreining og Lyfjaþróun ehf. Skilyrði fyrir aðild að samtökunum eru, að fyrirtækið, eða fulltrúar þess á Íslandi, stundi lyfjarannsóknir, þrói, framleiði eða markaðssetji lyf. Fyrirtæki sem hafa að markmiði að þróa og markaðssetja samheitalyf og apótek eða apótekakeðjur sem framleiða lyf geta ekki átt aðild að samtökunum.
Frumtök - Samtök framleiðenda frumlyfja hyggjast hafa frumkvæði að rannsóknum og greiningu á íslensku heilbrigðiskerfi svo betri skilningur fáist á þeim vanda sem að steðjar. Einnig vilja samtökin vekja athygli á og kynna mikilvægi rannsókna og þróunar nýrra lyfja fyrir samfélagið og nauðsyn þess að slíkri starfsemi séu búin hagstæð starfsskilyrði á Íslandi.
Sjúkdómar, breytingar í aldurssamsetningu þjóðarinnar og ýmis heilbrigðisvá af völdum manna og náttúru er stöðug áskorun fyrir samfélagið. Fuglaflensa og mögulegur heimsfaraldur inflúensu er nærtækt dæmi um það. Þörf á nýjum meðferðarúrræðum og óskir um framfarir á sviði læknavísinda hafa því aldrei verið meiri. Ein afleiðing þessarar þróunar er aukið álag á heilbrigðiskerfið og meiri kostnaður við málaflokkinn, þar með talinn lyfjakostnaður. Umræða um lyfjamál hér á landi er oft yfirborðskennd, gjarna er einblínt á beinan útlagðan kostnað vegna lyfja, en ávinningur meðferðar sem fyrirbyggir sjúkdóma, læknar eða dregur úr einkennum þeirra virðist stundum gleymast í umræðunni. Það er ætlun Frumtaka að standa að gerð fræðslu- og kynningarefnis um lyf og málefni framleiðenda frumlyfja auk efnis um sjúkdóma og forvarnir þeirra. Frumtök ætla einnig að leggja sitt lóð á vogarskálar þess að ræða fjármögnun heilbrigðiskerfisins á uppbyggilegan hátt og í nánu samstarfi við stjórnvöld, stofnanir, félagasamtök, fagaðila og alla þá sem áhuga hafa á þessum málaflokki. Framfarir og nýsköpun verða ekki í lyf og læknisfræði nema umhverfi til rannsókna og nýsköpunar sé hagfellt og að reglur um einkaleyfi og hugverkavernd standi vörð um hag þeirra sem sinna slíkum rannsóknum. Frumtök munu einnig beita sér á þessum vettvangi í þágu almannaheilla.
Ný lyf líta dagsins ljós á hverju ári en það skal játað að lyfjafyrirtæki finna ekki upp ígildi penisillíns á hverju ári. Stundum heyrast gagnrýnisraddir þess efnis að ekki sé um raunverulegar nýjungar að ræða þegar ný lyf eru kynnt til sögunnar. Í þessu sambandi er rétt að benda á að framþróun í læknavísindum gerist þannig að skrefin eru stutt og stigið er varlega til jarðar. Þegar litið er til baka sl. 10 ár, svo dæmi sé tekið, geta menn ekki annað en séð hversu mjög þekkingu og úrræðum hefur fleygt fram. Stundum koma hinsvegar fram stórkostlegir hlutir þar sem ný þekking ryður nýjar brautir og gefur von um líkn og lækningu sem ekki var möguleg áður. Það er á þessum vettvangi sem framleiðendur frumlyfja starfa.
Hjörleifur Þórarinsson,
formaður Frumtaka Samtaka framleiðenda frumlyfja.
<<Til baka