Sjónvarpið hefur undanfarið staðið fyrir sýningum fróðlegra þátta um nýsköpun og vísindi á Íslandi en kynnir þáttanna er Ari Trausti Guðmundsson sem er þjóðinni vel kunnur.
Ari Trausti kynnir áhorfendur fyrir áhugaverðum verkefnum á sviði vísinda og tækni, en talsverð gróska hefur verið á því sviði á Íslandi undanfarin ár. Umræða um rannsóknir og þróun hefur sótt í sig veðrið í kjölfar efnahagshrunsins og þó aðstæður séu enn erfiðar í landinu er jarðvegurinn frjór fyrir hugarfarsbreytingu á sviði nýsköpunar og þróunar.
Í þættinum Nýsköpun og íslensk vísindi þann 28. mars síðastliðinn var meðal annars fjallað um gigtarsjúkdóma og meðferð þeirra, m.a. með nýjustu líftæknilyfjum. Frumtök hafa fengið góðfúslegt leyfi Lífsmyndar, framleiðanda sjónvarpsþáttanna, og þeirra sem koma fram í þættinum til að birta umfjöllunina um gigtarsjúkdómana á heimasíðu sinni.
Nýjar leiðir
Í þættinum var meðal annars rætt við Hauk Guðlaugsson organista og fyrrverandi söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar en hann er einn fjölmargra sem hefur notið góðs af nýrri tegund gigtarlyfja. Lyfin koma í veg fyrir útbrot og bólgu í liðum og er um geysilega framför að ræða fyrir Hauk sem áður þurfti að gangast undir tíðar sprautur í liði. Fyrir organista eru lífsgæðin allt önnur með nýju lyfjunum því þau gera honum m.a. kleift að sinna ástríðu sinni, að spila og æfa sig.
Bættri starfsgetu Hauks og fjölda annarra má þakka framþróun og nýsköpun á sviði líftækni og nýrra líftæknilyfja. Framfarirnar felast í betri lyfjameðferð og það eru þá líftæknilyfin sem hafa ollið mestri byltingu. Slík lyf virka beint á bólgur og hafa því bein áhrif á vinnufærni og þrek sjúklingana. Þau hindra ennfremur liðskemmdir og geta einnig grætt þær skemmdir sem voru fyrir. Um 450 sjúklingar eru á slíkri lyfjameðferð í dag.
Í þættinum kemur glögglega fram hve þjóðhagslegt verðmæti þessara lyfja er mikið og hve miklu máli það skiptir fyrir lækna að hafa aðgang að bestu fáanlegu úrræðum hverju sinni, en ekki síður hve miklu máli lyfin skipta til að bæta lífsgæði sjúklinga.
Myndbandið má sjá hér.
Untitled from Frumtök on Vimeo.