Þegar líða fer að jólum er fullorðna fólkið á þönum út um borg og bæ að klára að gera klárt fyrir jólin, kaupa allra síðustu jólagjafirnar svo enginn fari nú í jólaköttinn. Yngri kynslóðinni finnst hins vegar dagarnir allt of lengi að líða og er orðin full eftirvæntingar að aðfangadagur renni loksins upp. Látum anda jólanna fylla hjörtu okkar friði og ró yfir hátíðirnar og njótum samverustundanna með okkar nánustu.
Frumtök óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þakkar samveruna á árinu sem er að líða.