Frumtök á twitter

GSK leggur enn meira til bólusetninga í þróunarlöndunum

Þróunarlönd glíma enn við barnadauða vegna niðurgangs og uppkasta. Veikindin orsakar rótaveira og talið er að af völdum þessara alvarlegu veikinda látist eitt barn á hverri einustu mínútu. Þá veldur rótaveiran því að milljónir manna þurfa að leggjast inn á spítala vegna alvarlegra veikinda. Hægt er að koma í veg fyrir veikindi af völdum rótaveiru með bólusetningum.

Í vikunni tilkynnti lyfjafyrirtækið GSK að það hygðist bjóða GAVI samtökunum (The Global Alliance for Vaccines and Immunisation) bólusetningarlyfið Rotarix á 2,5 dollara skammtinn til að berjast gegn þessum fyrirbyggjanlegu veikindum sem stafa af rótaveiru.

Miðað við almennt markaðsverð í þróuðum löndum er um 95% afslátt að ræða og kemur tilboðið til GAVI í kjölfar þess að UNICEF óskaði eftir bólusetningarlyfjum vegna baráttunnar við rótaveiru.

Ef tilboð GSK verður samþykkt þá munu bólusetningar hefjast síðar á þessu ári. Alþjóðlegir sjóðir og samtök tóku þátt í tilboðsgerðinni og munu þau styðja fjárhagslega við aðgerðirnar ef af þeim verður.

Rótaveira getur valdið alvarlegum bráðaniðurgangi hjá börnum um allan heim. Í þróunarlöndum er hinsvegar heilbrigðisþjónusta af það skornum skammti að börn fá ekki nauðsynlega heilbrigðisþjónustu til að takast á við veikindi sem þessi. Með því að skuldbinda sig til að útvega 125 milljón skammta af Rotarix vonast GSK til að önnur lyfjafyrirtæki leggi einnig hönd á plóg og berjist gegn hættulegum sjúkdómum sem hægt er að koma í veg fyrir.

<<Til baka Bookmark and Share

Af hverju lyf?

Lyf geta gerbreytt lífi fólks sem glímir við erfið veikindi. Fólk getur náð stjórninni af sjúkdómnum með réttum lyfjum.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.