Frumtök á twitter

Hagtíðindi um lyfjanotkun

Í nýjustu útgáfu Hagtíðinda Hagstofu Íslands kemur fram að smásöluverðmæti lyfja sem notuð voru á Íslandi árið 2010 var rúmir 25 milljarðar króna. Sú upphæð skiptist þannig niður að stærsti hluti lyfjanna er notaður innan almannatryggingakerfisins, eða 38,4%, næststærsti hlutinn er notaður á heilbrigðisstofnunum, eða 26,2% og restin er hjá einkaaðilum. Inni í þessum tölum eru bæði lyfseðilsskyld lyf og þau sem seld eru án lyfseðils.

Eins og bent hefur verið á hér á vef Frumtaka er umfjöllun um lyfjanotkun oft nokkuð villandi þar sem ýmist er talað um hana út frá krónutölu eða magni. Í Hagtíðindum er sýnd notkun þriggja algengra lyfja og hún skoðuð bæði út frá DDD skömmtum, sem eru skilgreindir dagsskammtar, og söluverðmæti.

Samanburðurinn sýnir hve misjafnar niðurstöður fást eftir forsendunum sem eru gefnar. Til að mynda var aukning í notkun tauga- og geðlyfja nokkuð stöðug á tímabilinu 2007-2010, eða 8,5%, en söluverðmæti lyfjaflokksins jókst um 36,5% á sama tíma.

<<Til baka Bookmark and Share

Af hverju lyf?

Lyf geta gerbreytt lífi fólks sem glímir við erfið veikindi. Fólk getur náð stjórninni af sjúkdómnum með réttum lyfjum.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.