Frumtök á twitter

HIV, áður fyrr og nú

Árið 1987 voru lífslíkur einstaklings sem greindist með HIV aðeins 18 mánuðir. Með hjálp nútímalyfja eru lífslíkur einstaklings með HIV í dag 22 ár. Á hverju ári greinast um þrjár milljónir manna með HIV og talið er að árið 2005 hafi yfir 40 milljónir manna verið smitaðar af veirunni. Lyf skipta sköpum og geta gjörbreytt lífsgæðum þessara einstaklinga.

Fyrir um rúmum tveimur áratugum síðan var óttinn við alnæmi allsráðandi á í vestrænu samfélagi. Í ár eru 30 ár síðan að talið er að eyðnifaraldurinn hafi byrjað, með þeim afleiðingum að þúsundir manna misstu ástvini, vini og ættingja.

Ein af fyrstu fréttunum vestanhafs um sjúkdóminn birtist í vikulegri skýrslu Centers for Disease Control and Prevention um dauðsföll 5. júní, 1981. Allir sjúklingarnir sem fjallað var um í skýrslunni áttu það sameiginlegt að glíma við einhverskonar alvarleg vandræði með ónæmiskerfið. Það leið ekki á löngu þangað til þróað var próf sem mældi svokallaðar T-frumur og kom þá í ljós að einstaklingarnir, sem voru fimm talsins og búsettir á Los Angeles svæðinu, voru algjörlega lausir við T-frumur.

1996 voru lífslíkur sjúklinga með HIV um 10 ár. Með betri lyfjum hefur náðst stöðugt betri árangur en helsti vandinn í dag er áframhaldandi dreifing sjúkdómsins.

Algengustu smitleiðir HIV á Íslandi eru sprautur sem ganga á milli fíkniefnaneytenda. Fíkniefnaneytendur sem sprauta sig deila stundum nálum og stuðla þannig að útbreiðslu sjúkdómsins. Reglulega fer sú umræða aðf stað hvernig hjálpa megi fíkniefnaneytendum að forðast að deila sprautum og sprautunálum með öðrum.

Lyf skipta sköpum
Enn sem komið er ekki til bóluefni gegn HIV. Þau lyf sem til eru útrýma heldur ekki veirunni en þó ekki sé hægt að útrýma sjúkdómnum er að miklu leyti hægt að halda niðri einkennum.

Það kemur þó enn fyrir að sjúklinga látist úr alnæmi. Ekki bregðast allir eins við ævilangri lyfjameðferð. Það er því mikilvægt að vinna að því öllum árum að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu sjúkdómsins og beita til þess forvarnarstarfi og frekari lyfjarannsóknum.

Í dag er heilbrigður lífsstíll mikilvægur til að lífsgæði fólks í HIV lyfjameðferð verði sem mest.

Að sögn Landlæknisembættisins höfðu í byrjun árs 2003 greinst 161 einstaklingar með HIV á Íslandi frá því sjúkdómsins varð fyrst vart. 53 hafa greinst með alnæmi og 36 látist af völdum þess. Þá hefur frá árinu 1996 virkni lyfjameðferðar verið slík að dregið hefur úr fjölda þeirra sem greinast með alnæmi.

<<Til baka Bookmark and Share

Hvaða máli skipta lyf?

Rétt lyf eru jafn mikilvæg og rétt sjúkdómsgreining. Lyf geta gert fólki að yfirstíga sjúkdóma sem annars væru óyfirstíganlegir.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.