Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nýlega gefið út tölur fyrir vörur sem tollayfirvöld hafa gert upptækar. Um er að ræða vörur sem lúta að óheimilli hagnýtingu hugverka (intellectual property rights). Tölurnar eru fyrir síðasta ár og áhugaverðar fyrir lyfjaiðnaðinn því ljóst er að fölsun lyfja er sívaxandi vandamál.
Tölurnar sýna að af þeim vörum sem hald er lagt á eru 10% lyf. Mest er um falsaðar tóbaksvörur eða 35%, merkjavörur 13% og lyf 10%.
Lífstílslyf og nauðsynleg lyf
Þau lyf sem eru helst fölsuð samkvæmt upplýsingum toll yfirvalda eru svokölluð lífstílslyf eins og Viagra og ýmiskonar megrunarlyf. Það er þó mun alvarlegra að einnig er algengt að verkjalyf, þunglyndislyf, ofnæmislyf, kvíðalyf og alnæmislyf eru einnig fölsuð í miklum mæli.
Nokkra athygli vekur að upptækar falsaðar vörur koma frá mismunandi svæðum eftir því hvaða flokki vörurnar tilheyra. Þannig er algengt að fölsuð leikföng komi t.d. frá Indlandi, fölsuð matvara frá Tyrklandi og fölsuð lyf koma að talsverðu leiti frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Sem fyrr er það þó Kína sem ber ábyrgð á stærstum hluta vörufalsana á þessu sviði með 64% af heildinni.
Talið er að seld séu fölsuð lyf í Evrópu fyrir um 1200 milljarða íslenskra króna árlega en tilkoma veraldarvefsins hefur gert það að verkum að mun auðveldara er að nálgast lyf eftir ólögmætum leiðum en áður. Í könnun sem lyfjafyrirtækið Pfizer stóð að kom meðal annars í ljós að fimmtungur þáttakenda hafði keypt lyf ólöglega.