Frumtök á twitter

Holskefla

Jóhannes M. Gunnarsson, framkvæmdastjóri lækninga við LSH, líkti fyrir nokkru tilkomu nýrra lyfja við holskeflu, í samtali við Morgunblaðið. Þetta orðalag er óvenjulegt og má skilja þannig að eitthvað slæmt sé að gerast, eitthvað neikvætt og þá væntanlega vegna þess hve dýr hin nýju lyf séu. Jóhannes viðurkennir jú að vissulega geri nýju lyfin meira og betra gagn en þau sem fyrir eru og auki verulega lífsgæði. Ennfremur viðurkennir hann að sum lyfin geti jafnvel læknað alvarlega sjúkdóma. En það er umhugsunar vert að í augum framkvæmdastjórans skuli tilkoma nýrra lyfja fyrst og fremst birtast sem holskefla.

Væntanlega hafa þessi orð verið sett fram í fljótfærni, verið vanhugsuð, eins og hent getur alla góða menn. En orðalagið speglar því miður algengt viðhorf þeirra sem bera ábyrgð á rekstri heilbrigðiskerfisins og þann vanda sem þeir eiga við að etja í flóknu og ógegnsæju kerfi. Óskandi væri að heilbrigðisyfirvöld hefðu oftar í huga hið gamalkunna ráð að kasta ekki krónunni með því að spara aurinn. Ný lyf er afrakstur áratuga rannsókna og þróunarstarfs og þó að þau séu oft dýrari en eldri lyf, þá spara góð lyf heilbrigðiskerfinu og þjóðarbúinu öllu, þegar upp er staðið, miklar fjárhæðir, til dæmis með fækkun legudaga á sjúkrahúsum, um leið og þau auka lífsgæði og lina þjáningar. Og lyfin geta jafnvel læknað alvarlega sjúkdóma.

Stóra vandamálið er ekki tilkoma nýrra lyfja heldur rekstrarvandi heilbrigðiskerfisins í heild og skortur á heildaryfirsýn yfir kostnað á móti ávinningi einstaklinga og samfélags. Þar þarf að spyrja grundvallarspurninga sem ráðamenn hafa því miður allt of lengi heykst á að spyrja og svara. Því ber að fagna þeim tóni sem nýlega var slegin í leiðara Morgunblaðsins þegar spurt er hvenær lyf séu svo dýr að ekki sé talið verjandi að kaupa þau með peningum skattgreiðenda og hversu langt samtrygging heilbrigðiskerfisins eigi að ná. Lykilspurningar sem þessar sem og umræða um nýjar leiðir í fjármögnun heilbrigðiskerfisins fá því miður of litla athygli. Í raun má segja að stóru spurningunni um hvert skuli stefna með heilbrigðiskerfi þjóðarinnar hafi alls ekki verið svarað. Skyldi það breytast í aðdraganda kosninganna í vor?

_________
Jakob Falur Garðarsson
Þessi grein birtist í Morgunblaðinu, 8. febrúar 2007.
<<Til baka Bookmark and Share

Lyf eru nauðsynleg

Það eru forréttindi að geta læknað og líknað. Án þróunar frumlyfja staðnar framþróun heilbrigðismála. Lyf eru nauðsyn í nútíma samfélagi og einn mikilvægasti stólpi heilbrigðiskerfisins.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.