
Á síðasta ári var ákveðið að ráðast í það að bólusetja 12 ára stúlkur gegn HPV veirunni (Human Papilloma Virus) sem vörn gegn
leghálskrabbameini. Til verkefnisins verður varið 50 milljónum í ár.
Bólusetning á Íslandi hefst í seinni hluta september 2011 og verður stúlkum sem fæddar eru 1998 og 1999 boðin bólusetning. Framvegis verður hinsvegar öllum tólf ára stúlkum boðin bólusetning.
HPV veiran veldur mikilli áhættu á
leghálskrabbameini en nútíma bóluefni geta komið í veg fyrir sýkingu af völdum veirunnar og myndun leghálskrabbameins.
Tvö bóluefni eru á markaði sem vernda gegn tveimur algengustu stofnum HPV, stofnunum 16 og 18 sem valda tveimur þriðju allra tilfella leghálskrabbameins. Annað bóluefnið veitir auk þess vörn gegn stofnum 6 og 11 sem valda kynfæravörtum.
Bóluefnið sem notað verður hér á landi er frá
GSK og heitir
Cervarix. Gefnar verða þrjár sprautur á 6 til 12 mánaða tímabili.
Leghálskrabbamein er sérstakt að því leytinu til að talið er að með virkri leit, rannsóknum og bólusetningu sé nánast hægt að útrýma leghálskrabbameini.
Bóluefni er áhrifarík leið til að koma í veg fyrir sýkingu vegna HPV veirunnar sem bóluefnunum er beint að.
Krabbamein í leghálsi er næst algengasta krabbameinið hjá konum um allan heim að sögn
Landlæknisembættisins. 14 til 17 konur greinast með leghálskrabbamein á hverju ári á Íslandi og er meðalaldur þeirra um 45 ár.
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri
Krabbameinsfélags Íslands, fagnaði á sínum tíma áfanganum en frumvarpið var borið fram af þingkonum allra flokka.