Frumtök á twitter

Hreyfing og hollusta - Lykill að framtíð

Frumtök studdu með stolti rannsóknir á lífsstíl 7-9 ára barna sem sýna að hægt er að auka hreyfingu og stuðla að hollara mataræði með samstilltu átaki heimila og skóla. Rannsóknin Lífstíll 7-9 ára barna var samstarfsverkefni sem vísindamenn og framhaldsnemar við Menntavísindasvið og Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands unnu að á árunum 2006-2008. Verkefnið miðaði að því að auka heilbrigði barna og var unnið í samstarfi við Menntasvið Reykjavíkurborgar og sex grunnskóla í borginni. Niðurstöður rannsóknarinnar voru nýverið kynntar í þættinum Hreyfing og hollusta – lykill að framtíð sem sýndur var í Sjónvarpinu.

Markmið
Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif íhlutunaraðgerða á hreyfingu, mataræði og lífsstíl sjö til níu ára barna. Haustið 2006 var 300 sjö ára börnum í sex grunnskólum Reykjavíkur boðin þátttaka í ýmsum mælingum, m.a. á holdafari, þreki, hreyfingu, beinþéttni, mataræði og þáttum sem tengdust lífsstíl þeirra. Þátttökuskólunum var skipt af handahófi í tvo hópa; þrír íhlutunarskólar og þrír viðmiðunarskólar. Engin afskipti voru höfð af viðmiðunarskólunum yfir rannsóknatímabilið. Að tveggja ára íhlutunartímabili loknu árið 2008 voru allir þátttakendur mældir á sama hátt og við upphaf rannsóknarinnar.

Niðurstöður
Við upphaf rannsóknarinnar hreyfðu börn í íhlutunarskólunum sig að jafnaði um 35 mínútur á dag í skipulagðri hreyfingu. Afar fá börn hreyfðu sig samkvæmt hreyfiráðleggingum Lýðheilsustöðvar (60 mín/dag miðlungserfið/erfið hreyfing). Við mat á íhlutunum kom í ljós að samkvæmt skráningu hafði skipulögð hreyfing á skólatíma aukist jafnt og þétt yfir rannsóknartímabilið. Undir lok íhlutunartímabilsins fengu börn í íhlutunarskólunum að jafnaði um 60 mínútur af skipulagðri hreyfingu á skólatíma. Niðurstöður hreyfimælinga sýndu einnig umtalsverða aukningu hreyfingar af miðlungserfiðri og erfiðri hreyfingu á skólatíma, einkum meðal drengja. Þátttakendur í íhlutunarhópi juku þrek sitt hlutfallslega meira en þátttakendur viðmiðunarskólanna, eða að meðaltali um 10% frá því þeir voru mældir haustið 2006.
Við upphaf rannsóknarinnar var ávaxta- og grænmetisneysla barnanna lág, því var mest áhersla lögð á að auka hana. Í íhlutunarskólum jókst ávaxta- og grænmetisneysla á tímabilinu í um meira en 60 g/dag að meðaltali, en minnkaði á sama tíma í viðmiðunarskólunum um 45 g/dag. Við lok tímabilsins náðu 22% barnanna í íhlutunarskólunum ráðleggingum varðandi ávaxtaneyslu og 4% ráðleggingum varðandi grænmetisneyslu, samanborið við 16% og 0% í viðmiðunarskólunum. Fiskneysla jókst í báðum hópum. Gæði fitu í fæðu barna í íhlutunarskólunum jukust. Sykurneysla var enn há við lok rannsóknarinnar en trefjaneysla hafði aukist í íhlutunarskólunum. Báðir hópar náðu að meðaltali ráðlögðum dagskammti af joði við lok rannsóknarinnar en ekki af D vítamíni.

Ályktanir
Grunnskólabörnin sem tóku þátt í þessu tveggja ára íhlutunarverkefni hreyfðu sig meira, voru í betra líkamlegu formi og borðuðu hollari mat að tveimur árum liðnum samanborið við börn í viðmiðunarhóp. Niðurstöður verkefnisins sýna að mögulegt er að breyta lífsstíl og lifnaðarháttum barna á jákvæðan hátt með réttum íhlutunaraðgerðum í almennu skólastarfi.

Þátttakendur
Rannsóknarverkefnið var samstarfsverkefni Háskóla Íslands og sex grunnskóla í Reykjavík; Árbæjarskóla, Fossvogsskóla, Ingunnarskóla, Laugarnesskóla, Langholtsskóla og Seljaskóla. Þátttakendur frá Háskóla Íslands voru Erlingur Jóhannsson, prófessor, Ingvar Sigurgeirsson, prófessor og Inga Þórsdóttir, prófessor. Þrír doktorsnemar komu að framkvæmd verkefnisins, þau Ása Guðrún Kristjánsdóttir doktor í næringarfræði, Kristján Þór Magnússon MPH faraldsfræðingur og Hannes Hrafnkelsson MD sérfræðingur í heimilslækningum. Tveir meistaranemar komu að verkefninu; Katrín Heiða Jónsdóttir og Erna Héðinsdóttir.
<<Til baka Bookmark and Share

Hvernig tengjast Frumtök þér?

Traustur aðgangur að góðum lyfjum skiptir þig sköpum. Aðeins þannig er heilsufarslegt öryggi þitt tryggt.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.