
Í nýjasta tölublaði
Læknablaðsins er athyglisvert
viðtal við Sigurð Böðvarsson, krabbameinslækni á Landspítalanum. Nokkuð hefur verið fjallað um viðtalið í fjölmiðlum síðustu daga, en Sigurður gerir þar grein fyrir þeirri ákvörðun sinni að hætta sem læknir á Landspítalanum og flytjast með fjölskyldu sinni búferlum erlendis. Í viðtalinu fer Sigurður m.a. yfir samskipti sín, sem formaður Læknafélags Reykjavíkur, við heilbrigðisyfirvöld, segist m.a. löngum hafa reynt að miðla sjónarmiðum lækna og ítrekað vilja þeirra til samstarfs og samvinnu um stefnumótun og framkvæmd heilbrigðismála hér á landi. Eitt af því sem Sigurður segir hafa komið sér á óvart er hve veik stjórnsýslan hér á landi sé og af hve skornum skammti upplýsingar séu.
Þessi gagnrýni er í samhljómi við það sem m.a. hefur verið sett fram af Frumtökum, sbr.
frétt mbl.is um ómarkvissar aðgerðir varðandi breytingar á greiðsluþátttökukerfi lyfja og
gagnrýni Robins Turners, forstjóra Roche í Danmörku, á samskiptin við heilbrigðisyfirvöld. Fram hefur komið að lyfjafyrirtæki séu
jafnvel hætt að skrá ný lyf hér á landi og að illa ígrundaður skammtímasparnaður muni, þegar upp er staðið, koma til með að valda samfélaginu meiri kostnaði. Af hálfu Frumtaka hefur, líkt og Sigurður segir lækna hafa gert, verið kallað eftir samstarfi og samvinnu um stefnu og framtíðarsýn, nokkuð sem vonandi verður að veruleika og íslensku heilbrigðiskerfi og þeim sem það nota til hagsbótar.