Frumtök á twitter

Kólesteróllækkandi lyf með matnum?

Á vefsíðu breska dagblaðsins The Guardian er að finna áhugaverða frétt um að læknar telji að skyndibitastaðir ættu að bjóða kólesteróllækkandi lyf með mat til að draga úr líkum á hjartasjúkdómum.

Það voru hjartalæknar við Imperial College London sem lýstu því yfir í síðustu viku að ef skyndibitastaðir tækju upp á því að bjóða kólesteróllækkandi lyf með skyndibitanum væri hægt að vinna á móti óheilsusamlegum áhrifum skyndibitans og þannig draga úr líkum á hjartasjúkdómum.

Í greininni kemur fram að sjá mætti fyrir sér að skyndibitastaðir byðu upp á kólesteróllækkandi lyf, eða svokölluð statin-lyf, við hlið tómatsósunnar, saltsins og piparsins. Gestir skyndibitastaðarins gætu því gripið í eina pillu um leið og ostborgaranum er skolað niður með mjólkurhristingnum.

Í American Journal of Cardiology hefur þetta verið gefið í skyn en þar skrifaði Dr. Darrel Francis að vissulega væri best að sneiða hjá óhollum eða feitum mat en það væri samt hans mat að það gæti verið til góðs að bjóða upp á þennan kost fyrir þá sem á annað borð láta ekki segjast og sækja í óhollan feitan mat.

Læknar hafa tekið þessum hugmyndum misjafnlega og bent á að viss hætta sé á því að fólk stundi óheilsusamlegra líferni ef það viti að hægt sé að taka lyf sem sporni við neikvæðum áhrifum lifnaðarins.

Dr. Darrel Francis kemur hinsvegar með þau mótrök að fólk borði skyndibitamat jafnvel þó það viti að hann sé óhollur. Af þessum sökum megi líkja því að bjóða kólesteróllækkandi lyf við ýmsar fyrirbyggjandi aðgerðir sem miði að því að draga úr heilsutjóni sem fylgi ákveðnum lífstíl. Hann bendir ennfremur á að kostnaðurinn við að bjóða lyfið á skyndibitastöðum myndi nema því sem lítið tómatsósubréf kostar.

Kólesteróllækkandi lyf geta eins og mörg önnur lyf haft aukaverkanir en eru þó milljónum Breta lífsnauðsynleg í baráttunni við hjarta- og æðasjúkdóma.
<<Til baka Bookmark and Share

Hvernig tengjast Frumtök þér?

Traustur aðgangur að góðum lyfjum skiptir þig sköpum. Aðeins þannig er heilsufarslegt öryggi þitt tryggt.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.