
Á Læknadögum 2011 standa Frumtök fyrir málþingi um möguleika og sóknarfæri á sviði klínískra rannsóknir hér á landi, en þær hafa átt nokkuð undir högg að sækja undanfarin ár. Nú er hinsvegar að margra mati lag að blása til sóknar þar sem Ísland býður vel menntað starfsfólk, góða aðstöðu, einstaka gagnagrunna og almennt eftirsóknarvert atvinnuumhverfi.
Klínískar rannsóknir kosta mikla fjármuni og hafa nágrannalöndin, t.d. Svíþjóð, náð miklum árangri á sviði lyfjaþróunar eftir að farið var út í samstillt átak yfirvalda, háskóla og heilbrigðisfyrirtækja.
Sama þróun hefur átt sér stað í Noregi. Mun Kristján Erlendsson, framkvæmdastjóri Vísinda-, mennta- og gæðasviðs LSH, fara yfir þá þróun og fjallað um hve hratt t.a.m. rannsóknaraðstaða hefur vaxið á skömmum tíma þar í landi.
Ýmis teikn eru á lofti um að íslenskir sérfræðingar sjái nú vaxandi tækifæri á þessu sviði. Hjá Landspítalanum er búið að setja á stofn klínískt rannsóknarsetur í samstarfi við HÍ með það fyrir augum að laða hingað rannsóknir.
Starfsemi á borð við klínískar rannsóknir er dæmigerð sprotastarfsemi sem þarfnast ekki kostnaðarsamrar uppbyggingar á borð við mannvirki eða aðra dýra aðstöðu eða innviði. Margt bendir því til að með samstilltu átaki sé lítið sem standi í vegi fyrir því að á Íslandi geti á ný þrifist blómlegur hátækniiðnaður á þessu sviði. Raunar starfa nú þegar þónokkur sprotafyrirtæki í sambærilegu sviði í dag sem flest fagna velgengni.
Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:
Læknadagar 2011 á hótel Hilton Nordica
Komdu á málþing Frumtaka um klínískar lyfjarannsóknir og horfur þeirra á Íslandi.
Klínískar lyfjarannsóknir – horft til framtíðar
Miðvikudagur 26. janúar kl. 13-16 – málþing á vegum Frumtaka.
Kl. 13:00 Setning og inngangserindi
Kristján Erlendsson, Landspítala
Kl. 13:10 Lyfjaþróun með augum yfirvalda
Kolbeinn Guðmundsson barnalæknir,
sérfræðingur hjá Lyfjastofnun
Kl. 13:40 Mikilvægi samskipta heilbrigðisgeirans við háskóla og iðnfyrirtæki
til þess að örva vísindi og þróun.
Birgir Jakobsson, Karolinska Universitetssjukhuset
Kl. 14:15 Kaffihlé
Kl. 14:35 Industry perspective – Innovation in the Pharmaceutical Industry
Malcolm Skingle CBE, DSc, PhD
Director, Academic Liaison, GlaxoSmithKline
Kl. 15:05 Klínískt rannsóknarsetur LSH og HÍ
Pétur S. Gunnarsson PharmD, Verkefnastjóri, Klínískt rannsóknarsetur LSH/HÍ
Kl. 15:25 Möguleikar í nýsköpun á Íslandi
Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Kl. 15:45 Umræður
Frumtök koma einnig að síðdegisfundi, fimmtudaginn 27. janúar kl. 16.15, á Læknadögum á vegum GlaxoSmithKline, Lilly og Lundbeck undir yfirskriftinni: „Er dýrt að spara? Yfirlit yfir almennar greiðsluþátttökubreytingar með áherslu á þunglyndislyf“.