Frumtök á twitter

Læknadagar 2012 haldnir 16. - 20. janúar í Hörpu

Læknadagar 2012 verða haldnir í Hörpu og standa þeir frá 16. – 20. janúar. Líkt og undanfarin ár verður dagskrá Læknadaga fjölbreytt og yfirgripsmikil enda hafa þeir stækkað og orðið umfangsmeiri ár frá ári. Meðal dagskrárliða á læknadögum má nefna málþing um transfólk og kynskiptiaðgerðir, auk fyrirlestra um þolendur kynferðisofbeldis, athyglisbrest og ofvirkni hjá börnum og unglingum, offitu og nýliðun og mönnun lækna í heilbrigðisþjónustunni svo fáein atriði séu nefnd. Dagskrá Læknadaga er hægt að kynna sér ítarlega á vef Læknafélagsins.

Læknadagar verða formlega settir mánudagskvöldið 16. janúar kl. 20. En fyrr um daginn verður efnt til Læknahlaupsins og er það í þriðja skipti sem hlaupið fer fram. Hlaupnir eru 5 km meðfram Sæbrautinni og svo er einnig boðið upp á djúpslökun og Yoga í hádeginu. Athygli er vakin á því að dagskrá mánudagsins er helguð offitu og hvetur Arna Guðmundsdóttir, formaður Fræðslustofnunar Læknafélag Íslands, starfsmenn í heilbrigðisgeiranum  til að kaupa sér dagpassa fyrir þann dag.

Í fyrsta sinn veita Læknadagar alþjóðlega símenntunarpunkta (CME) til jafns við alþjóðleg læknaþing. Að sögn Örnu er þetta mikilvægur áfangi fyrir íslenska lækna sem margir hverjir starfa í alþjóðlegu umhverfi þar sem kröfur um símenntun eru gerðar. Þótt slíkt sé ekki tilfellið hérlendis er mikilvægt að Læknadagar veiti nú CME-punkta í ljósi þess að sífellt fleiri læknar starfa utan landssteinana og eru mun hreyfanlegri í sínum störfum en áður.

<<Til baka Bookmark and Share

Hvernig tengjast Frumtök þér?

Traustur aðgangur að góðum lyfjum skiptir þig sköpum. Aðeins þannig er heilsufarslegt öryggi þitt tryggt.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.