Frumtök á twitter

Landlæknir gefur út skýrslu um ávísanir á lyfseðilsskyld lyf

Landlæknisembættið hefur gefið út skýrslu um ávísanir á lyfseðilsskyld lyf árið 2009. Í frétt á vef embættisins kemur fram að skýrslan byggi á lyfjagagnagrunni landlæknis sem hefur að geyma upplýsingar um ávísanir lyfja sem afgreidd eru á lyfsölustöðum og nær því ekki yfir lyf sem afgreidd eru til sjúklinga á sjúkrahúsum eða dvalar- og hjúkrunarheimilum.

Í frétt landlæknis segir að lyfjaávísunum árið 2009 hafi fjölgað um 0,46%, að fjöldi dagskammta hafi aukist um 0,65% og að notendum lyfja hafi fjölgað um 0,18% frá árinu áður. Landlæknir segir að þótt hér sé ekki um mikla breytingu að ræða milli ára hafi notkunin verið mismunandi eftir lyfjaflokkum.

Af stærri lyfjaflokkum minnkaði notkunin mest í flokki sýkingalyfja, en nefna má að læknar hafa verið hvattir til að forðast notkun ákveðinna sýklalyfja. Aukning var hins vegar mest í flokki meltingarfæra- og efnaskiptalyfja, eða um 10% aukning dagskammta.

Skýrsluna í heild sinni er að finna hér.
<<Til baka Bookmark and Share

Björt framtíð

Aukin þekking, almenn heilsuefling, forvarnir og fjölbreyttar meðferðarlausnir eru okkur nauðsynlegar til að skapa bjarta framtíð.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.