
Bandaríkjamenn lifa skemur en íbúar margra iðnríkja og er þar lélegu heilbrigðiskerfi um að kenna fremur en offitu, reykingum, morðum eða öðru. Langlífi eykst í iðnríkjum þar sem allir njóta heilbrigðistrygginga, ólíkt Bandaríkjamönnum.
Þetta eru niðurstöður könnunar sem framkvæmd var af vísindamönnum við Kólumbía-háskóla í New York og sagt var frá í fréttum Ríkisútvarpsins í vikunni.
Í fréttinni segir að bornar hafi verið saman lífslíkur í Bandaríkjunum og 12 iðnríkjum, þeirra á meðal Ástralíu, Belgíu, Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og Svíþjóð. Í öllum þessum löndum njóta íbúar almennrar heilbrigðistryggingar, en um 15 prósent Bandaríkjamanna hafa ekki slíka tryggingu.
Fram kemur að
í viðmiðunarlöndum hafi framlög til heilbrigðisþjónustu aukist á árunum frá 1975 til 2005 og langlífi aukist því samfara. Annað sé uppi á teningnum í Bandaríkjunum, þar hafi framlög til heilbrigðisþjónustu aukist gríðarlega á þessu tímabili, en langlífi ekki aukist eins mikið og ætla hafi mátt.
Bandaríkin hafi dregist aftur úr öðrum löndum hvað varði langlífi. Þannig hafi Bandaríkin árið 1950 verið í fimmta sæti helstu iðnríkja í samanburði á lífslíkum kvenna við fæðingu. Í dag væru þau í 46. sæti og í 49. sæti séu bæði kynin tekin með.