Frumtök á twitter

Líf með lyfjum – málþing á vegum SÍBS


Frumtök vekja athygli á áhugaverðu málþingi á vegum SÍBS, sem fram fer í Þjóðmenningarhúsinu, þriðjudaginn 22. mars kl. 16. Á málþinginu verður farið yfir hver reynslan hefur verið hingað til af breyttri, og minni, greiðsluþátttöku ríkisins vegna lyfja.

Breytingar á greiðsluþátttöku hófust snemma á síðasta ári og því er nú komin talsverð reynsla á hver áhrif breytinganna hafa verið. Meðal fyrirlesara er sjúklingur sem segir áhugaverða reynslusögu sína. Að lokinni dagskrá verða pallborðsumræður. Fundarstjóri verður Guðmundur Bjarnason, formaður Hjartaheilla. Málþingið er öllum opið.

Dagskrá:

Setning:
Dagný Erna Lárusdóttir, formaður SÍBS.

Öndunarfæralyf, sparnaður og lífsgæði:
Hjörleifur Þórarinsson, lyfjafræðingur.

„Er ríkið okkar gæfusmiður?“:
Salóme Arnardóttir, heimilislæknir.

Reynslusaga sjúklings:
Haraldur Haraldsson.

Blóðfitumeðferð, forvarnir og framtíðin:
Dr. Karl Andersen, dósent í hjartalækningum.

Pallborðsumræður.
<<Til baka Bookmark and Share

Hvernig tengjast Frumtök þér?

Traustur aðgangur að góðum lyfjum skiptir þig sköpum. Aðeins þannig er heilsufarslegt öryggi þitt tryggt.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.