Frumtök á twitter

Lyfjanotkun hefur dregist saman undanfarin ár

Vegna fréttar sem birtist á fréttavef Eyjunnar í gær vilja Frumtök leiðrétta þann misskilning sem kemur fram í fréttinni, að lyfjanotkun hafi aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Hið rétta er að lyfjanotkun á Íslandi, sbr. opinberar tölur frá Lyfjastofnun, hefur dregist saman undanfarin tvö ár, þar af um 1,2% á síðasta ári.

Þó lyfjanotkun hafi minnkað hefur fjöldi lyfjaávísana aftur á móti vaxið. Hver skýringin er á því liggur ekki ljóst fyrir, en nokkuð hefur verið um breytingar á reglum tengdum lyfjáávísunum undanfarin misseri, t.d á reglum tengdum greiðsluþátttöku. Má vera að hluti skýringarinnar liggi þar.

<<Til baka Bookmark and Share

Lyf eru nauðsynleg

Það eru forréttindi að geta læknað og líknað. Án þróunar frumlyfja staðnar framþróun heilbrigðismála. Lyf eru nauðsyn í nútíma samfélagi og einn mikilvægasti stólpi heilbrigðiskerfisins.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.