Frumtök á twitter

Lyfjaverð lækkar við styrkingu krónunnar

LyfjaglasÞann 23. júní sendi Alþýðusamband Íslands (ASÍ) frá sér fréttatilkynningu þess efnis að þrátt fyrir að nokkra styrkingu krónunnar undanfarið hafi verðlag ekki lækkað. Að sögn ASÍ hefði mátt reikna með því að verðlag fylgdi gengi krónunnar með svipuðum hætti og gerðist þegar gengi krónunnar veiktist en þá hækkaði verðlag nokkuð nákvæmlega í takt við veikingu krónunnar.

Í ljósi þessa vilja Frumtök benda á að lyfjaverð á Íslandi hefur sannarlega lækkað í takti við styrkingu krónunnar. Ef verð á fjörtíu veltuhæstu lyfjapakkningunum, sem birt var í verðkönnun Lyfjagreiðslunefndar (LGN) í febrúar s.l., er borið saman við verð sömu pakkninga í júlíverðskrá LGN, kemur í ljós að heildsöluverðið hefur lækkað um 15% á þessum tíma. Lækkunin á milli júní og júlí ein og sér er um 5%. Taka skal fram að júlíverðskráin er nýútgefin og því er um nýjar upplýsingar að ræða.

Upplýsingarnar eru byggðar á 40 veltuhæstu lyfjunum á Íslandi sem öll voru með greiðsluþátttöku í febrúar.

Heilbrigðisyfirvöld hafa þegar farið í róttækar breytingar á greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands með það að markmiði að lækka lyfjakostnað. Út í þessar aðgerðir er farið þrátt fyrir þá staðreynd að lyf á Íslandi eru fremur ódýr og hafa með styrkingu krónunnar lækkað enn frekar eins og nýjustu tölur LGN sýna, á meðan lækkanir á öðrum vörum láta á sér standa eins og kemur fram í tilkynningu ASÍ.
<<Til baka Bookmark and Share

Af hverju lyf?

Lyf geta gerbreytt lífi fólks sem glímir við erfið veikindi. Fólk getur náð stjórninni af sjúkdómnum með réttum lyfjum.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.