Lyfjaverslun ríkisins
Heilbrigðisráðherra og embættismenn hennar ræða nú meinta nauðsyn þess að vekja til lífsins Lyfjaverslun ríkisins. Rökin eru sögð vera ónóg samkeppni á lyfjamarkaði. Því til staðfestingar er fullyrt að hér á landi sé framboð ódýrra lyfja mun minna en í öðrum Evrópulöndum. Þessi fullyrðing er röng og rök stjórnmála- og embættismanna fyrir uppvakningu lyfjaverslunar ríkisins halda ekki vatni.
Á íslenskum markaði er hlutfall frumlyfja u.þ.b. 85% sem af heilbrigðisyfirvöldum er sagt vera allt of hátt. Sambærilegt hlutfall er lægra í Danmörku og Þýskalandi, eða rétt tæp 80%. Hlutfallið á Bretlandi er svipað og hér landi, um 83%, en í löndum líkt og í Noregi, Svíþjóð, Austurríki, Írlandi, Frakklandi og Sviss er hlutfall frumlyfja á markaði hærra en hér á landi. Á Spáni og í Belgíu er hlufall frumlyfja um 95%. Varðandi lyfjainnflutning er að fullu búið að innleiða EES reglur þannig að reglur hér eru í engu frábrugðnar því sem gerist annars staðar í Evrópu og fram hefur komið að verð frumlyfja er að jafnaði lægra hér á landi en í Danmörku.
Heilbrigðisyfirvöld standa frammi fyrir miklum vanda í rekstri heilbrigðiskerfisins í heild sinni. Skattgreiðendur eiga skýlausa kröfu til stjórnmálamanna um skynsamlega meðferð fjármuna hins opinbera. Augljóslega er margt sem betur má gera þegar kemur að rekstri heilbrigðiskerfisins. Endurvakning lyfjaverslunar ríkisins mun ekki tryggja betri meðferð skattpeninga okkar almennings. Aftur á móti gæti verið ráð að hið opinbera myndaði sér stefnu í heilbrigðismálum almennt, með það að leiðarljósi að nýta þá gríðarlegu fjármuni sem til málaflokksins fara betur en nú er gert.
Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka.
<<Til baka