
Frumtök hafa reglulega flutt fregnir af því undanfarna mánuði að alþjóðlegir glæpahringir beittu sér í auknu mæli fyrir lyfjafölsunum. Aðgerða hefur verið vænst um nokkurt skeið og loks var gripið til aðgerða í alþjóðlegu átaki gegn sölu á fölsuðum og ólöglegum lyfjum á netinu sem
tollgæslan á Íslandi tók þátt í.
Aðgerðin var kölluð Pangea IV og var hún skipulögð af alþjóðasamtökum tollyfirvalda eða
WCO (World Customs Organization) og Interpol. Aðgerðin stóð yfir í heila viku frá 20. september og er hún sú stærsta sem farið hefur verið í.
Á heimasíðu tollgæslunnar kemur fram að 81 land hafi tekið þátt í aðgerðinni og að hald hafi verið lagt á um 8000 sendingar en hvorki meira né minna en 2,4 milljónir taflna voru gerðar upptækar.
Ljóst er að vandamálið gríðarlegt. Vöxturinn í fölsunum er mikill og afleiðingarnar skelfilegar því að á meðal þeirra fölsuðu lyfja sem gerð eru upptæk eru meint fúkkalyf, krabbameinslyf, þunglyndislyf og flogaveikislyf sem geta valdið miklum skaða ef virkni þeirra er ekki eins og til er ætlast.
Fölsuð lyf eru í flestum tilfellum seld á netinu og má að nokkru leyti átta sig á umfangi vandans á því að um 13,500 sölusíðum lokað.
Margir kunna að halda að Ísland sé laust við óáran af þessu tagi en svo er ekki. Tollgæslan hér lagði hald á tæplega 8000 töflur samkvæmt fréttum á
visir.is og
mbl.is og var það í takt við væntingar tollgæslunnar sem þekkir vandann vel.
Til að forðast fölsuð lyf er æskilegt að kaupa lyf í apótekum frekar en á vefsíðum, uppboðssíðum eða með pósti.