Frumtök á twitter

Mest ávísuðu lyfin fyrr og nú

Þegar Bretar fóru til læknis fyrir 20 árum segir tölfræðin að þeir hefðu líklegast komið út með lyfseðil fyrir sýklalyfjum eða innöndunar”pústi”. Í dag eru hjartalyf og blóðfitulækkandi lyf mest ávísuðu lyfin í Bretlandi, samkvæmt grein í breska blaðinu The Guardian. Þar segir jafnframt að einn af hverjum fjórum Bretum yfir fertugu taki inn statínlyf að staðaldri, en þau lækka blóðfitu. Athygli vekur líka að Levothyroxine, sem er lyf við sjúkdómum í skjaldkirtli hefur stokkið úr átjánda sæti upp í það þriðja. Næst er spurt: Hvað hefur breyst?

Af tölunum að dæma hefur tilfellum hjartasjúkdóma fjölgað og fólk fær síður astma í dag en fyrir 20 árum. Hvað geta 20 ára gamlar ávísanablokkir sagt okkur í dag?
 

Statínlyf

Fyrir 20 árum var mest ávísaða lyfið astmapústið, salbutamol. Nú hefur statínlyfið simvastatin tekið sæti þess. Astmapústin hafa færst niður í sjöunda sæti en eru þó notuð af um milljón manns í Bretlandi í dag.
Ástæðan er sú að fyrir 20 árum voru statínlyf aðeins notuð af þeim sem voru með verulega hátt hlutfall kólesteróls í blóði. Nú fá allir sem fengið hafa hjartaáfall slík lyf og þeim er jafnframt ávísað til sjúklinga með mun lægra hlutfall kólesteróls í blóði en áður.
 

Sýklalyf

Munurinn liggur í einhverjum tilfellum í að lyf í dag eru orðin betri og áhrifaríkari; til að mynda eru sum lyf við magasári orðin það góð að þau hafa að einhverju leyti leyst sýklalyf af hólmi. Sýklalyf eru nú í fjórtánda sæti á listanum, en voru í öðru sæti fyrir 20 árum. Þar spilar inn í aukið ónæmi bakteríanna fyrir lyfjunum, og til að bregðast við því er þeim ekki eins frjálslega ávísað og áður.

Paracetamol

Peningar koma líka við sögu þegar leitað er skýringa á breyttu mynstri ávísaðra lyfja í Bretlandi, eins og kemur fram í grein Guardian. Fyrir 20 árum var kostnaður sjúklingsins líklega frekar hafður að leiðarljósi en í dag við ávísun lyfja, sem gerði það að verkum að paracetamoli var mun meira ávísað með öðrum lyfjum. Ávísuð lyf í Bretlandi voru ódýrari en í lausasölu og því nýtti fólk sér það og fékk ávísað paracetamoli til að fá það ódýrara.

Lyf gegn sjúkdómum í skjaldkirtli

Með auknum lífslíkum, hafa ýmsar tegundir lyfja sem notuð eru gegn langtímasjúkdómum færst ofar á listann. Það kann að vera skýringin á því að lyf við skjaldkirtilsvandamálum hafa rokið upp listann. Læknir sem vitnað er í í greininni segir það líklega ástæðu, en til viðbótar hafi sjúkdómar í skjaldkirtli mögulega einnig verið ofgreindir.

Framtíðin

En hvað ber framtíðin þá í skauti sér? Verða hjartalyf enn efst á lista eftir önnur 20 ár? Vitnað er í sérfræðing í lyfjarannsóknum sem segir rannsóknir á hjartalyfjum og blóðfitulækkandi lyfjum ekki eins áberandi í dag og áður. Nú hafi rannsóknir á lyfjum við til að mynda krabbameini, Alzheimer, Parkinson og Huntington sjúkdómum aukist, því þekkingu á erfða- og lífefnafræðilegum þáttum þeirra hafi fleytt fram.

Það má gera ráð fyrir að svipaðar niðurstöður fengjust ef lyfjaávísun hér á landi væri skoðuð fyrr og nú. Hjarta- og blóðfitulækkandi lyf eru mest notuðu lyfin hér á landi og nauðsynleg afar stórum hópi fólks, eins og sjá mátti dæmi um í fréttum liðinnar viku. Fréttin sýnir líka mikilvægi þess að fólk fái nauðsynleg lyf sem henta þeim best, í stað þess að velja ávallt ódýrasta kostinn, eins og raunin er eftir breytingar á greiðsluþátttöku ríkisins í fyrra.

5 mest ávísuðu lyfin í Englandi í dag
• Simvastatin – blóðfitulækkandi
• Aspirin – verkjalyf, einnig notað við hjartaöng og fyrirbyggjandi við hjartaáfalli
• Rampiril – við of háum blóðþrýstingi, hjartabilun, hjartaáfalli og fyrirbyggjandi gegn hjartaslagi
• Bendro-flumethiazide – við of háum blóðþrýstingi og/eða hjartabilun

5 mest ávísuðu lyfin í Englandi fyrir 20 árum
• Salbutamol – við astma og krónískum lungnasjúkdómum
• Amoxicillin – sýklalyf
• Paracetamol – verkjastillandi
• Co-proxamol – verkjastillandi
• Beclomatasone – sterapúst við astma

<<Til baka Bookmark and Share

Lyf eru nauðsynleg

Það eru forréttindi að geta læknað og líknað. Án þróunar frumlyfja staðnar framþróun heilbrigðismála. Lyf eru nauðsyn í nútíma samfélagi og einn mikilvægasti stólpi heilbrigðiskerfisins.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.