
Í dag hélt
Einkaleyfastofa ráðstefnu í Hörpu um mikilvægi höfundaréttar en stofan fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli sínu. Yfirskrift ráðstefnunnar er „The Importance of Intellectual Property Rights“ og fór hún fram á ensku en tilgangur ráðstefnunnar er að vekja athygli á höfundarétti, eða hugverkarétti.
Með síminnkandi heimi er fólki gert auðveldara að kaupa vörur á netinu og leita sér upplýsinga um vörur og þjónustu. Það er hinsvegar orðið verulegt og alvarlegt vandamál hve framboð falsaðra vara er orðið mikið. Í sumum tilfellum getur verið um alvarleg mál hvað varðar heilsu fólks eins og er raunin er þegar lyf eru annars vegar. Sjúklingar sem þurfa lífsnauðsynleg lyf geta átt erfitt með að þekkja ekta lyf frá fölsuðum lyfjum.
Hvað lyf varðar er hugverkaréttur afar mikilvægur í heilsufarslegu samhengi því gróft sagt mætti segja að án hugverkaréttar væri engin lyfjaþróun. Án lyfja eru samfélög heimsins í mikilli hættu. Hinsvegar þarf að ná ákveðnu jafnvægi á milli hugverkaréttar og möguleika fólks á að njóta þess besta sem lyfjageirinn hefur upp á að bjóða. Mannréttindasjónarmið geta meira að segja spilað þarna inn í en flestir hagaðilar eru sammála um að án hugverkaréttar í þessum geira geti ekki orðið nægileg framþróun þar sem þróunarkostnaður lyfjaframleiðenda er svo gríðarlegur.
Hugverkaréttur í iðnaði er lyfjaiðnaðinum gríðarlega mikilvægur. Flest lyfjafyrirtæki byggja lífsviðurværi sitt á einn eða annan hátt á að hugverkaréttur verndi þau lyf sem þeim tekst að þróa. Lyfjafyrirtæki beita rannsóknum til að þróa ný lyf, bæta þau lyf sem þegar eru til eða til þróunar á meðferðum og jafnvel tækjum.
Talið er að það kosti um 1,3 milljarða dollara að þróa nýtt lyf sem kemst á markað í dag. Hugverkaréttur er það kerfi sem stuðlar að því að sú fjárfesting náist tilbaka svo frekari framþróun geti átt sér stað.
Fleiri geta þó notið góðs af rannsóknum. Rannsóknargögn geta verið öðrum aðgengileg en þau eru oft kveikjan að nýjum hugmyndum og nýjum rannsóknum hjá öðrum fyrirtækjum. Þá er auðvitað ónefndur gildistími hugverkaréttarins en einkaleyfi renna út og að einkaleyfistíma loknum geta fyrirtæki sem framleiða samheitalyf farið af stað með sína framleiðslu í samkeppni við þróunarfyrirtækið.
Falsanir á lyfjum eru alvarleg brot sem stofna ekki aðeins sjúklingum í hættu heldur grafa undan stoðum heilbrigðs samfélags.