Á flestum heimilum landsins má finna lyfjaskápa eða körfu með helstu lyfjum heimilisins. Þar kennir oftast ýmissa grasa. Hið dæmigerða úrval gæti verið verkjalyf, ofnæmislyf, mixtúrur og fleira sem getur verið komið til ára sinna. Það er því mikilvægt að fara reglulega yfir lyfjaskápinn og taka frá þau lyf sem eru runnin út svo endurnýja megi í skápnum lyf með góða virkni.
Það er hinsvegar einnig mikilvægt að farga gömlum lyfjum á réttan hátt. Stór hluti gamalla lyfja fer nefnilega beint í ruslið en í raun á að fara með gömul lyf í næstu lyfjaverslun til förgunar.
Á hverju ári koma nokkur tonn af lyfjum til förgunar í lyfjaverslunum. Það má því gera sér í hugarlund að talsvert magn geti farið beint í rusl landsmanna eða í salernið.
Það er auðvitað ekki gott fyrir umhverfið og óþarfa áhætta er tekin með það að gömul lyf geti lent í röngum höndum. Ef slíkt gerist er hætta á eitrunum.
Frumtök hvetja til þess að reglulega sé farið yfir lyfjaskápa og útrunnum lyfjum fargað með viðeigandi hætti í næstu lyfjaverslun.