Frumtök á twitter

Mikilvægt að vera á varðbergi gagnvart malaríu

Bill Gates, stofnandi Microsoft, sagði á alþjóðlegri ráðstefnu í London í júlí sl. að mikilvægt væri að halda baráttunni gegn malaríu áfram af fullum krafti, ekki síst í vanþróuðustu hlutum heimsins þar sem neyðin væri stærst.

Í máli hans kom m.a. fram að þeir fjármunir sem GAVI-samtökin hefðu úr að spila, en það eru samtök sem berjast gegn þessum vágesti, rynnu einkum til þeirra svæða sem verst eru útleikin og sjúkdómurinn hve útbreiddastur sem er einkum í löndunum sunnan Sahara.

Af þeim fjármunum sem samtökin hafa úr að spila fara um 80% í kaup á bóluefni og afgangurinn í að skjóta stoðum undir heilbrigðiskerfi viðkomandi svæða, afhendingarkostnað auk fastakostnaðar sem fylgir starfseminni.

Afhending bóluefnanna og skortur á starfsmönnum í heilbrigðisgeiranum eru meðal stærstu hindrana í því að árangur náist í vanþróuðustu ríkjunum. Gates hélt því einnig fram á ráðstefnunni að ekki væri æskilegt að láta það fjármagn, sem ætlað er til kaupa á bóluefni, standa straum af kostnaði við uppbyggingu á innviðum vanþróaðra samfélaga.

Uppbygging innviða samfélagsins nauðsynleg
 
Dr. Sophie Harman er lektor í alþjóðastjórnmálum við City University í London. Hún hefur sérhæft sig í  lýðheilsurannsóknum og sagði að hafa ætti hugfast að fjárfesting í bóluefnum væri ekki töfralausn á þeim heilbrigðisvandamálum sem jarðarbúar glíma við eins og lungnabólgu og niðurgangi.

„Án nægilegs fjármagns til uppbyggingar á  innviðum samfélaga eins og heilbrigðiskerfis, læknamiðstöðva, þjálfun starfsfólks og nauðsyn þess að það sé til taks verða allar framfarir í bólusetningu og þróun bóluefna tilgangslausar.“

Sé mikilvægi uppbyggingar á innviðunum samfélagsins virtur að vettugi munu rándýr bóluefni einungis dúsa í geymslum vanþróaðra landa, án þess að nýtast nokkrum manni. Til að stuðla að betri heilsu er nauðsynlegt að samþætta fjárfestingu í rannsóknum á bóluefninu og uppbyggingu samfélagsins til að það gagnist raunverulega þeim fátæku.
<<Til baka Bookmark and Share

Lyf eru nauðsynleg

Það eru forréttindi að geta læknað og líknað. Án þróunar frumlyfja staðnar framþróun heilbrigðismála. Lyf eru nauðsyn í nútíma samfélagi og einn mikilvægasti stólpi heilbrigðiskerfisins.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.