EFPIA (European Federation of Pharmaceutical Industries and Association) fagnar áframhaldandi samstarfi opinberra aðila og einkaaðila (PPP) í verkefninu Sjóndeildarhringurinn 2020, sem er hluti af sjöundu rammaáætlun ESB. Framkvæmdastjórn ESB hefur skuldbundið sig til að veita verkefninu lið og lagt fram 80 milljarða evra í nýsköpun og rannsóknir. „Það er sameiginlegur skilningur á því að einkafyrirtæki ásamt hinu opinbera verði að vinna saman í ríkari mæli og finna nýjar leiðir til að gera okkur kleift að mæta kröfum framtíðarinnar,“ sagði Richard Bergström framkvæmdastjóri EFIPA.
Hluti af samstarfi um nýsköpun var hrundið í framkvæmd í því markmiði að auka samkeppnishæfi Evrópu hefur hlotið yfirskriftina Horizon 2020. Áætluninni verður hrundið í framkvæmd árið 2014 og mun standa til ársins 2020 og verður hin fyrsta sem mun sameina undir einum hatti alla þá sjóði sem veita fé til rannsókna og nýsköpunar. Til þessa hafa hin ýmsu verkefni á þessu sviði verið undir ýmsu hlutum fyrri rammaáætlana Evrópusambandsins, en nú, með þeirri sjöundu, er loks heildarsýn yfir þessa sjóði á einum stað.
Með þessu eykst skilvirkni þess að beina vísindalegum uppgötvunum í þann farveg að unnt sé að vinna úr þeim og framleiða vörur eða veita þjónustu með það að leiðarljósi að einfalda allt styrkjaumhverfi og blása nýju lífi í rannsóknar og nýsköpun.