
Mikilvægur áfangi náðist í baráttunni gegn malaríu þegar vefútgáfa tímaritsins
New England Journal of Medicine birti niðurstöður nýrrar rannsóknar
GlaxoSmithKline sem benda til þess að draga megi úr hættu á malaríusmiti um helming hjá afrískum börnum. Talið er að um helmingur mannkyns eigi á hættu að smitast af malaríu sem er valdur að 800.000 dauðsföllum árlega. Fórnarlömbin eru flest börn undir fimm ára aldri sem búa sunnan við Sahara-eyðimörkina í Afríku.
Mbl.is og
visir.is fluttu fregnir af árangrinum.
Nýja bóluefnið kallast
RTS,S og voru sérfræðingar á einu máli um að bóluefnið gæfi á þessu stigi góða raun og ástæða væri til frekari bjartsýni í baráttunni gegn þessum vágesti. Tilraunir á lyfinu voru gerðar á ellefu mismunandi stöðum í sjö löndum sunnan Sahara. Ólíkt fyrri bóluefnum er RTS,S beitt gegn sníkjudýri en ekki sýklum eða veirum eins og hingað til hefur verið gert.
RTS,S styrkir ónæmiskerfið í að verjast malaríu þegar hún kemst fyrst í blóðrás eða lifrarfrumur hýsils.
Lyfið hamlar sníkjudýrinu að sýkja og fjölga sér í lifur hýsils og berast þannig aftur í blóðrás og sýkja rauðu blóðkornin en á þeim tímapunkti koma einkennin venjulega fram hjá sjúklingnum.
Niðurstöðurnar hafa vakið mikla athygli um allan heim og sagði
Christopher Elias, forseti
PATH-samtakanna sem berjast fyrir bættri lýðheilsu að „þessar niðurstöður endurspegla vel framfarir baráttu okkar gegn malaríu sem við getum vonandi haldið í skefjum og ef til vill útrýmt í framtíðinni. Í dag hefur mikilvægur sigur náðst og við erum einu skrefi nær því að láta draum okkar rætast.“