Frumtök á twitter

Minna notað af lyfjum – hver er skýringin?

Pillur3Lyfjastofnun hefur tekið saman og birt á vef sínum töluleg gögn um notkun lyfja hér á landi á fyrri hluta þessa árs borið saman við sama tímabil á síðasta ári. Þar kemur fram að á fyrra helmingi þessa árs seldust 82,1 milljón skilgreindir dagskammtar lyfja (DDD) samanborið við 83,1 milljón á sama tímabili í fyrra. Notkunin hefur því minnkað um 1,2%.

Heildarsöluverðmæti þessara lyfja á fyrri hluta ársins í ár er um 13,0 milljarðar króna, en voru tæpir 12,9 milljarðar á fyrra helmingi ársins 2009. Söluverðmætið hefur því aukist um rétt rúm prósent milli tímabila, reiknað á smásöluverði með vsk.

Heildarsala lyfja allt árið 2009 nam 26,1 milljarði króna.

Í upplýsingum Lyfjastofnunar kemur fram að sala í stærsta lyfjaflokknum, hjarta- og æðasjúkdómalyfjum, hafi dregist saman um 9,5% reiknað í dagskömmtum fyrstu sex mánuði þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Heildarsöluverðmæti þessa flokks reiknað á smásöluverði með vsk. minnkaði um 18,2%. Athyglisvert væri að fá einhverja skýringu á því hvað veldur þessari miklu minnkun í notkun lyfja í þessum flokki. Var um ofnotkun þessara lyfja að ræða? Er heilsa þjóðarinnar skyndilega orðin betri? Getur verið að breytt greiðsluþátttaka lyfja í þessum flokki hafi einhverra hluta vegna þessi áhrif á notkunina?

Að endingu bendir Lyfjastofnun á að mestu fé verja Íslendingar í tauga- og geðlyf eða 3,6 milljörðum sem er 27,8% af heildarlyfjakostnaði fyrri hluta 2010, reiknað á smásöluverði með vsk. Þetta er 3,0% aukning frá síðasta ári en 2,3% aukning reiknað í dagskömmtum.
Meðfylgjandi gögn ná yfir alla lyfjasölu, þ.e. gegn lyfseðli, til stofnana og án lyfseðils.
<<Til baka Bookmark and Share

Lyf eru nauðsynleg

Það eru forréttindi að geta læknað og líknað. Án þróunar frumlyfja staðnar framþróun heilbrigðismála. Lyf eru nauðsyn í nútíma samfélagi og einn mikilvægasti stólpi heilbrigðiskerfisins.

Skráðu þig á póstlistann

Frumtök stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um lyfjamál og frumlyf á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með.